160 NATTURUFRÆÐINGURINN hvöss, án húðtota. Varaop óhulin í hæð við húðina í kring. Eru einungis á neðra borði blaðanna. Hrafnastör (C. saxatilis). tt. Sprotagerðin óreglulegri. Bilin milli sprotanna misjöfn og lengri. u. Fjögur greinileg, há og þunn, ljós rif hvorum megin við miðrif blaðanna. Blöðin 35 mm breið, tiltölulega stutt, skammydd, ljósgræn. Engar húð- totur. Varaop aðeins á neðra borði, í hæð við húðina í kring. Neðstu blað- slíðrin venjulega gráleit. Slíðrastör (C. sparsiflora). uu. Mörg lág rif báðum megin við miðrif blaðanna. Húðtotur á blöðunum, sem eru dökkgræn eða grágræn. Neðstu blaðslíðrin grá-móbrún. v. Blöðin venjulega 35 mm breið með niðurorpnum röndum, oft sveigð aftur á bak, stinn og stutt- ydd. Varaop og húðtotur einungis á neðra borði blaðanna. Jarðstöngull- inn með mórgum, bogsveigðum, sterkum renglum og sprotum og strjálum, grófum rótum (Hjárót- um). Blaðslíðrin með mógljáandi lágblöðum. Stinnastör (C. rigida). vv. Blöðin venjulega 23 mm breið með upporpnum röndum (einkum þurrkuð), ekki mjög stinn, langydd. Varop báðum megin á blöðunum, oft eins mörg á efra borði og hinu neðra. Húðtotur einungis á efra borði blaðanna. Blaðoddurinn er oft sveigður inn á við. Jarðstöng- ullinn er ekki mjög sterklegur, með uppréttum (eða ögn bogsveigðum) sprotum. Blaðslíðrin (lágblöðin) grá- leit eða móleit. Vex einkum í mýr- um. Mýrastör (C. Goodenoughii).