TILKYNNING um eigendaskipti á Náttúrufrðingnum. Það tilkynnist hér með lesendum Náttúrufræðingsins, að ég undirritaður, Guðjón Ó. Guðjónsscn, hefi selt Hinu íslenzka Náttúrufræðisfélagi tímaritið Náttúrufræðinginn, frá og með 1. (þessu) hefti 11. árgangs ritsins. Á hinn bóginn eru allar nú úti- standandi kröfur Náttúrufræðingsins áfram í minni eign og sömuleiðis allt það, sem út er komið af ritinu og enn er óselt og í mínum höndum. Skuldir Náttúrufræðingsins vegna fyrstu tíu árganganna (I.X.) eru Náttúrufræðisfélaginu einnig óviðkom- andi. Náttúrufræðisfélagið hefir þannig aðeins eignazt útgáfu- réttinn og fengið í, hendur spjaldskrár yfir kaupendur ritsins, og hefir félagið því eitt' hér eftir rétt til þess að gefa út Náttúru- íræðinginn. samkvæmt samningi dags. 19. þ. m. undirrituðum af formanni Náttúrufræðisfélágsins, Dr. Þorkeli Þorkelssyni, og mér, í votta viðurvist. Reykjavík, 20. september 1941. Guðjón Ó. Guðjónsson. Samkvæmt framanritaðri yfirlýsingu hefir Hið íslenzka Nátt- úrufræðisfélag keypt tímaritið Náttúrufræðinginn af hr. Guðjóni Ó. Guðjónssyni yfirprentara. Með þessu hefti hefst 11. árgangur ritsins, og er hann eign Náttúrufræðisfélagsins, en allir eldri ár- gangar (I,-X.) eru félaginu óviðkomandi. Þessa árganga getur þó féiagið útvegað nýjum kaupendum meðan birgðir endast. Náttúrufræðisfélagið ber veg og vanda af 11. árg. og innheimtir greiðslu fyrir hann, eins og þá árganga, sem síðar birtast, á meðan ritið er í eign félagsins, en útistandandi kröfur ritsins,