NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN sem og skuldir þess vegna 1.10. árgangs, eru Náttúrufræðis- félaginu óviðkomandi. Ritstjórn Náttúrufræðingsins, afgreiðsla hans og innheimta, verður fyrst um sinn til áramóta í höndum mag. scient. Árna Friðrikssonar, Atvinnudeild Háskólans (sími 5486 og 2711 (heima- sími).) Allir hlutaðeigendur eru því beðnir að snúa sér þangað. Náttúrufræðisfélagið hefir áformað að láta koma út 12 arkir af Náttúrufræðingnum, í tveimur heftum, á þessu ári og vonar síðan að geta búið svo um, að ritið komi út reglulega, hvernig sem gengið verður frá fyrirkcmulagi útgáfunnar framvegis, og hvernig sem tengsl Náttúrufræðingsins við félagið kunna að verða. Því miður er það óhjákvæmilegt, að áskriftargjaldið hækki upp í 10 kr. á ári úr 6 krónum, eins og það hefir verið síðan ritið hóf göngu sína 1931, en það er 67% hækkun og svarar til vísi- tölunnar nú. Þessi ráðstöfun er knúin fram af þeirri staðreynd, að kostnaður við bókagerð hefir hækkað mjög mikið, vegna hækkunar á vinnulaunum, og þó sérstaklega vegna hækkunar á pappírsverði. Verðið er nú 26-falt á við það, sem það var áður. Félagsstjórnin væntir þess, að kaupendur Náttúrufræðingsins bregðist vel við þessari nauðsynlegu hækkun og með fullum skilningi á nauðsyn hennar og reynist Náttúrufræðingnum jafn- tryggir og þeir hafa verið hingað til. Meðlimum Náttúrufræðisfélagsins skal sérstaklega bent á það, að þeír fá ritið fyrír 7 kr. á ári eða þremur krónum ódýrara en þeir, sem ekki eru félagsmenn. Reykjavi'k, 20. september 1941. Þorkell Þorkelsson.