___________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN_________________15 NÁTTORUFRÆÐINGURINN TÍU ÁRA GAIVIALL Með þessu hefti hefst ellefti árgangur Náttúrufræðingsins og er þar með tíu árgógnum lokið. Þessir tíu árgangar eru hinir eigulegustu og kærkomnir öllum þeim, sem unha náttúrunni eða náttúruvísindunum. Fyrir bókamenn er Náttúrufræðingurinn einnig mikils virði, og hann hefir jafnan haft eitthvað öllum að færa, jafnt börnum, sem byrjuð éru að lesa, og hugsandi, fullorðnu fólki. Þessir tíu árgangar, sem komnir eru á prent, eru röskar 1900 blaðsíður með ca 480 greinum og um 420 mynd- um. Allur þorri greinanna er ritaður við alþýðu hæfi og á hver maður að geta tileinkað sér efni þeirra undirbúningslaust, hvort sem hann er skólagenginn eða ekki. Þessar 480 greinar og rit- gjörðir eru skrifaðar af nærri 100 höfundum, og eru þær allar um náttúrufræði. Sumar þeirra eru allmiklar ritgjörðir, en aðrar eru styttri. Náttúrufræðingurinn hefir í þau tíu ár, sem liðin eru síðan hann hóf göngu, gert sér far um að gegna tveimur skyldum. í fyrsta lagi hefir hann leitazt við að fræða alþýðu manna um náttúrufræði, nýtt og gamalt, til gagns eða gamans, og vona ég að segja megi, að sú fræðsla sé nú þegar orðin allyfirgripsmikil. Þá er efni það, sem ritið hefir tekið til meðferðar, æði víðfemt. Þar er ef til vill mest um dýrafræði, en einnig mikið um jarð- fræði, jurtafræði, landafræði, mannfræði og margt fleira, sem óþarft er að telja. í öðru lagi hefir Náttúrufræðingurinn orðið vettvangur fyrir ýmsar ritgjörðir íslenzkra vísindamanna, enda þótt þær ættu ekki beint erindi til alls þorra almennings. Flestar þessar rigjórðir eru mjög mikils virði sem uppistaða í, eða heim- ildir til vísindalegra ritgjörða, sem síðar kunna að koma. í þenn- an flokk koma t .d. flórulistarnir. Álít ég vel* farið að Náttúru- fræðingurinn hefir haft bolmagn til þess að veita þeim mót- töku, þar sem ella myndi oft hafa reynzt erfitt að koma þeim fyrir almenningssjónir jafnfljótt og Náttúrufræðingurinn gaf skilyrði til. Náttúrufræðingurinn þakkar öllum vinum sínum fyrir samúð og traust á meðan hann átti erfiðast uppdráttar, á bernskuár- unura, og vonar að samúðin mégi haldast og vinunum fjölga á næstu tíu árum. Á. P.