22___________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN_____________________ nokkuð af bláberjalyngi (Betula pubescens-Vaccinium myrtillus- gróðurfélag). Sums staðar er kjarrið horfið og er þá aðalblá- berjalyngið ríkjandi. Umfeðmingur (Vicia cracca) vex hvarvetna í birki- og lyngbrekkunum og er mjög þroskalegur. Bendir það á jarðvegsgæði. Auk þess vex þar allmikið af krækilyngi, hrúta- berjalyngi, beitilyngi, grávíði, loðvíði, blágresi, bláklukku, unda- fíflum, sóley, brönugrösum, bugðupunti, ilmreyr og reyrgresi. Geithvönn teygir sig víða upp úr kjarrinu. Þar vaxa líka fagur- blóm, hárdepla og EGGTVÍBLAÐKA (LISTERA OVATA). Mun hennar ekki getið áður frá Austurlandi. Þarna í Kerlingarmóum og Grjótafjalli fann ég allmikið af Ajuga pyramidalis, sem er varablóm, skylt blákollu og brúðbergi. Þessi tegund hefir ekki fundizt áður hér á landi. Vex hún innan um lyng cg kjarr og mætti heita LYNGBÚI á íslenzku (sbr. Náttúrufræðinginn bls. 161 1940). GuIIkollur (Anthyllis vulneraria) og grástör. (Carex glauca) eru fundin í Njarðvík af Helga Jónssyni fyrir löngu. Eru þau algeng í Tóarfjalli allt niður að sjó rétt norðan við Borg í Njarðvík. í Tóarfjalli vex líka mikið af dúnhulstrastör (Carex pilulifera). Er þetta eini fundarstaður hennar á Austurlandi. í hlaðvarpanum á Borg í Njarðvík er dálítil breiða af gulbrá (Ma- tricaria suaveolens). Barst hún þangað fyrjr 56 árum að sögn. Gulbráin vex einnig á sjávarbökkum í Bakkagerði. Milli Kerl- ingarfjalls og Tóarfjalls liggur vegurinn eftir Göngudal yfir á Hérað. Þar í dalnum sá ég gullbrá (Saxifraga Hirculus) og tals- vert af vallhumli. Gullbrána sá ég ekki í byggðum Borgarf jarðar né Njarðvíkur og vallhumall er þar fágætur. Við Eiðaver á Hér- aði er stór breiða af TVÍBÝLISNETLU (Urtica dioica) í brekku undir hamrabelti, nálægt gömlum tóftarbrotum. Tvíbýlisnetlan vex einnig allvíða við bæi, t. d. Unaós, Hrafnabjörg og að Eiðum. Hjá Hrafnabjörgum sá ég líka kollstör, flóastör og ígulstör. ígul- stör vex einnig við brúna á Bjarglandi og má heita algeng í Borgarfirði og Njarðvík. Alls fann ég 227 tegundir í Njarðvík og Borgarfirði eystra. Naut ég aðstoðar athugulla manna, einkum séra Ingvars á Desjarmýri og Jóns Björnssonar kaupfélagsstjóra í Bakkagerði. Halldór Ásgrímsson kaupfélagsstjóri á Vopnafirði er finnandi súrsmærunnar (Oxalis acetosella) og hefir safnað jurtum í Borgarfirði. Fann Halldór súrsmæruna í grónu fram- hlaupi skammt innan við Hvannstóð, sem nú er í eyði. Ég sá ekki jurtina, en þrátt fyrir það getur hún hæglega vaxið ennþá á sínum gömlu stöðvum í framhlaupinu.