30 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN______________"_______ Gulbrá (Matricaria suaveolens). Bakkagerði og Borg í Njarðvík. Jakobsfífill (Erigeron borealis). Allvíða. Fjallakobbi (Erigeron uniflorus). Bakkafjall. Túnfífill (Taraxacum acromaurum). Alg. Engjafífill (Taraxacum croceum). Hér og hvar. Skarifífill (Leontodon auctumnalis). Víða. Fellafífill (Hieracium alpinum). Hér og hvar. ¦ íslandsfífill (Hieracium islandicum). Víða. Alls 227 tegundir. Auk þess sá ég nokkra slæðinga í Borgarfirði: Vallarfoxgras (Phleum pratense), háliðagras (Alopecurus pratensis), hempu- kraga (Chrysanthemum leucanthemum) og munkahettu (Lychnis flos-cuculi) í túnum. Gróður er miklu meiri í vesturhlíðum Borgar- arfjarðar og Njarðvíkur heldur en í austurfjöllunum. Fjöllin austan fjarðarins eru brött og blásin. Vesturhlíðarnar eru aftur á móti hallaminni cg þeim mun hlífa þykkur snjór á vetrum. Er þar víða berjaland mikið og sums staðar kjarrlendi.