32_________.__________NATTURUFRÆÐINGURINN_____________________ landsins, sem nú er hulin almenningi. Þótt ég hafi athugað gróður í Hegranesi allnákvæmlega, þá tel ég samt víst, að þar séu til allmargar plöntutegundir, sem ég hefi ekki enn fundið. í gróður- skrá þeirri, sem hér fer á eftir, fylgi ég yfirleitt þeirri reglu, að nefna ekki þær plöntur, sem vaxa aðeins í skúðgörðum, þótt ís- lenzkar séu, nema því aðeins að þær hafi einnig vaxið villtar einhvers staðar í Hegranesi. Þar sem ég bregð út af þessu mun ég geta þess sérstaklega við þær plöntur, að þær séu í skrúð- garði. Eigi mun ég heldur telja þær plöntur, sem vaxa í sáð- sléttum túna og hefir verið sáð þar með öðru fóðurgrasfræi svo sem rauðsmára o. fl., nema geta þess að þær séu aðfluttar með grasfræi. SKRÁ YFIR GRÓÐUR í HEGRANESI Raðað eftir ættum plantnanna. I. Ophioglossaceae. Naðurtunguættin: 1. Tungljurt (Botrychium lunaria). Algeng á harð- velli úthaga. II. Polypodiaceae. Tóugrasættin: 2. Tóugras (Cystopteris fragilis). Alg. 3. Köldugras eða sæturót. (Polypodium vulgare). Vex í klettum austan í svonefndu Lógarbergi. III. Eqvisetaceae. Elftingaættin: 4. Klóelfting (Eqvisetum arvense). Alg. 5. Vallelfting (E. pratense). Algeng í valllendi. 6. Mýrelfting (E. palustre). Algeng í engjum. 7. Fergin (E. limosum). Víða í tjörnum. 8. Beitieski (E. variegatum); Víða í móum. 9. Eski (E. hiemale). V;ða í lyngmóum og harð- vellislyngbrekkum, en hvergi nema ein og tvær plöntur í stað. IV. Selaginellaceae. Mosajafnaættin: 10. Mosajafni (Selaginella selaginoides). Alg. V. Cupressaeae. Sýprisættin: 11. Einir (Juniperus communis). Vex á dálitlum bletti á Tjarnarnesi ca. 1 km innan við Vestur- ós Héraðsvatna. VI. Juncaginaceae. Sauðlauksættin: 12. Mýrasauðlaukur (Trigloehin palustris). Alg.