NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN . 41 DRANGEY OG HVERNIG HÚN ER TIL ORÐIN Okkur, sem aldir erum upp í Skagafirði, er hann minnisstæð- astur eins og hann glóir í sólskini og sumarskrúða. Aldrei sést betur en þá, hversu hann er skrauti búinn fagurgjörður," eins og skáldið kemst svo fallega að orði. Sé degi tekið að halla og horft yfir Skagafjörð frá framhluta héraðsins og úr hæfilegri fjallahæð, þá hefi ég notið þess bezt að horfa yfir betta lang- stærsta dalmyndunar-undirlendi landsins, grængróið og slétt, en mjúkt eins og flosaður dúkur. Þá sést, að það er ísaumað líkt og gullnum og silfurlitum þráðum, þar sem vatnsföllin Héraðsvötn og Húseyjarkvísl bugðast milli grösugra eyja allt til sjávar. Um þetta lykur svo fjallahringurinn, víða með mjúkdregnum línum, en á þó til oddhvassar eggjar og tígulega tinda. Nefni ég hér aðeins hin þekktustu örnefni einsog Glóðafeyki, Mælifells- hnúk og sjálfan Tindastól. í þessum sal er hátt til lofts og vítt til veggja, en til norðurs sér til sjávar eins og um opnar dyr. Þar blandast hafblikið geislaglóð hnígandi sólar, svo hér er skreytt með fegurra fortjaldi en mannleghónd hefir eða mun nokkurn tíma fá málað eða ofið. En dyrnar standa ekki alveg auðar. Undir tjaldskörinni hillir nokkra hamrakastala, er rísa hátt úr sjó eins og rammgerð virki.- Þetta eru útverðirnir við innsiglinguna á Skagafjörð, eyj- arnar Drangey og Málmey og svo Þórðarhöfði. Ég gríp þar niður jarðsögulega, er ísland hefir að baki sér langa æfi og Skagafjörður er að miklu mótaður því heildarsniði, er hann nú hefir. Ef til vill hefir hann þá átt skógi klæddar hlíðar og gróðursælt undirlendi, engu síður en Hólmurinn er nú, en svo nefna Skagfirðingar sléttlendi fjarðarins. En það var um þetta leyti farið að kólná í lofti. Langvarandi kuldatímabil, sem kallað hefir verið ísöldin, var að ganga í garð. Jöklar settust á hálendið og luktu síðan um landið eins og spangabrynja. Jökul- tungur ókust ofan héruðin og á haf út. Þær sópuðu með sér gróð- urmoldinni 'og öllu, er lauslegt gat talizt, og þær hefluðu jafnyel upp hið fasta berg. Hversu lengi svo gekk verður ekki vitað, en aftur náðu hlýindin yfirhöndinni og jökullinn hörfaði til baka