54_________________NATTÚRUFRÆÐINGURINN___________________ BALDUR JOHNSEN lknir: GRÓÐURRÍKl ÖRÆFA OG SUÐURSVEITAR f AUSTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU Gróðurathuganir þessar eru gerðar á árunum 19241935 er ég á sumrum dvaldi í Suðursveit og ferðaðist oft um Öræfin. Gróðurlendin í Suðursveit og Öræfum eru eins og í öðrum hlutum Skaftafellssýslu og öðrum vatnasveitum, mjög háð hinum tíðu hlaupum jökulánna. Hlaupin koma ýmist er vatnsdalir tæmast á skömmum tíma eða gos eru í jöklinum. Flæðir þá kol- mórautt, straumþungt jökulvatnið yfir víðar lendur; oft sér hvergi á dökkan díl upp úr vatninu mílu vegar, því að hvergi er hæð eða þústa, sem veitir viðnám, enda undirlendi allt myndað af framburði ánna. Hlaupin skilja svo eftir gróðurlausa auðn, þar sem þau hafa farið yfir. En nýjar plöntur setjast brátt að í leirnum og mölinni. Sumir einstaklingar fá tíma til þess að mynda plöntusamfélag í auðninni, sem staðizt getur nokkur ár, en aðrir eru þegar hrifnir burt á næsta ári eða öðru, eftir kenjum vatnanna. Það er og eðli jökulvatnanna, að bera leir og möl í farveg sinn, uns hann fyll- ist, renna þau þá í nýjan farveg undan hallanum. Ferðast vötn- in þannig fram og aftur um undirlendið og eyða engjum og mó- um, sem höfðu náð að myndast á hlutfallslega löngu friðartíma- bili. Mestur hluti undirlendisins er því að vonum gróðurlaus. Skeiðarársandur, Breiðamerkursandur, Steinasandur og Heina- bergssandur bera eyðileggingunni vitni. Það er að vísu of mikið að segja, að sandarnir séu alveg gróðurlausir, því hér og hvar, oft með löngum millibilum, sjást toppar af melskriðnablómi, skeggsanda, hundasúru, helluhnoðra og þúfusteinbrjót, að ó- gleymdri eyrarrósinni, sem stundum nær að mynda álitlegar breiður. Á einum stað austan Jökulsár, þar sem seytlaði berg- vatnslækur, voru breiðir af gullsteinbrjót. Lítið ber á melnum, enda er sandurinn víðast fastur, leirblandinn eða grýttur. Að- eins á litlu svæði, austan Jökulsár, hefir hann náð fótfestu í lausari sandi. Eins og óasar í eyðimörkinni eru svo hér og hvar litlir engjablettir; sums staðar nýgræður með brokflám og