___________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN_________________55 hrossanál, og sums staðar eldri engjar með mýrastör og gulstbr. Þar sem gróðurinn á annað borð hefir náð fótfestu, er hann gróskumikill, en fáskrúðugur. Jafnvel jöklinum hefir blöskrað ógestrisni sona sinna og dætra, sandanna og vatnanna og boðið gróðrinum bústað við sinn breiða, en kalda og brigðuga faðm. Að þessu hafa plönturnar í neyð sinni orðið að lúta, og faldar nú helluhnoðrinn jökulröndina gullnum faldi, en skelþunnt malarlag skilur hann frá ísnum. Um 250 metra frá jökulbrún fann jeg og álitlegan gróðurblett uppi á jöklinum, á 510 cm. malar- og moldarlagi. Grassvörðinn myndaði vallarsveifgras og varpasveifgras og ónnur túngrös. Kví- skerjabóndinn hefir haft þarna-hrúta á vorin; þar verpir og veiðibjalla. Umræddar gróðureyjar eru á Breiðamerkurjökli. Vatnagróður er fáskrúðugur, ár eru flestar gróðurlausar jök- ulár, en stöðuvötn flest gróðurlítil nema helzt í Borgarhófn; þar eru skrúðgrænar fergintjarnir með marandi síkjarmara og lófót, þráðnykru og fjallnykru, og þar sem er grynnst er fitja- finnungur. Heiðagróður er og mjög fáskrúðugur, enda fjöllin flest há og brött með stórgrýttum skriðum og klettum og skammt til jökla. Helzt er að finna heiðagróður uppi af Skaftafelli í Öræfinu og á Borgarhafnarf jalli í Suðursveit, með fífutjörnum og sefmóum með bjbllulyngi. Aðalgróðursvæðin eru við rætur fjallanna, sem blasa við hádegissólinni. Neðst eru veitur, þar sem hálmgresið teygir koll- inn upp úr mýrstör og horhóf, þ. e. horblaðka og hófsóley í nánu samfélagi, en í túnfætinum ofan við veituna bannsyngur sláttu- maðurinn snarrótina. Ofan við túnin taka við vallendis-, blómlendis- og skóglendis- brekkur með ilmreyr, bláklukku, blákollu og blágresi og gulvíðis- eða birkikjarri með einstaka reynitré á milli. Sums staðar hefir birkið náð álitlegri hæð eins og í Bæjarstað, í Skaftafelli og Svínafelli. í giljunum í Skaftafelli og Svínafelli nær gróðurinn æfintýralegum blóma. Þar hreykir sér hinn glæsilegi sigurskúf- ur undir laufþaki reynitrjánna. Múnkahettan baðar sig í fínum úða frá fossinum, og upp úr þykkum, rökum mosa, á flúðum, teyga sig gullbrá, stjörnusteinbrjótur og dúnurt, og hátt uppi í klettunum situr klettafrúin á sínum græna blaðkrans með drif- hvít blóm á rauðum stöngli. Af sjaldgæfari plöntum má nefna eggtvíblöðku úr Skafta-