64___________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN__________ STEINDÓR STEINDÓRSSON frá Hlöðum: FLÓRA MELRAKKASLÉTTU Sumarið 1934 ferðaðist ég um Melrakkasléttu til gróðurrann- sókna. Gerði ég þá athuganir bæði á almennu gróðurfari, gróður- félögum, útbreiðslu þeirra og lífsskilyrðum, og aflaði mér yfirlits um flóru héraðsins. Um gróðurfarsrannsóknirnar gaf ég út rit- gerðina ,,Om Vegetationen paa Melrakkasljetta i det nordöstlige Island" og birtist hún í Botanisk Tidsskrift 43. bd. Kaupmanna- höfn 1936. Af sérstökum ástæðum gat flórulisti ekki fylgt þeirri ritgerð, hefir hann síðan legið hjá mér. En engu að síður tel ég réttmætt að láta hann birtast, þar sem fátt er um héraðsflórur hér á landi, og engin þeirra frá norðausturlandinu. Rannsóknasvæðið, sem flórulisti þessi nær yfir, er Melrakkaslétta frá Hólsá að austan og inn að Efri-Hólum í Núpasveit að vestanverðu. Þó er rann- sóknarsvæðið einkum fram með ströndinni, enda þótt ég einnig færi allmikið um innra hluta Sléttu. Tegundirnar eru taldar hér í sömu röð og í Flóru íslands, II. útgáfu, en latnesk heiti eru eftir Ostenfeld and Gröntved: Flora of Iceland and the Færoes. Til rúmsparnaðar hefi ég sleppt ættaheitum. Magister Johs. Gröntved, bókavörður í Kaupmannahöfn, hefir gert mér þann ómetanlega greiða að nafngreina fyrir mig vand- greindar tegundir og éndurskoða ýmsar af nafngreiningum mín- um, og kann ég honum fyrir það beztu þakkir. 1. G E4 Tungljurt (Botrychium lunaria) Alg. 2. G E4 Tóugras (Cystopteris fragilis). Fremur sjaldgæft. 3. G Al Skjaldburkni (Polystichum lanchitis). Mjög sjald- gæfur. Blikalónsdalur. 4. G E4 Klóelfting (Equisetum arvense) Alg. 5 G E2 Vallelfting (E pratense) Alg. 6. G E2 Mýrelfting (E. palustre). Alg. 7..HH E2 Fergin (E. fluviatile). Sj. Raufarhöfn, Höskuldsnes. Blikalón. 8. H A3 Beitieski (E. variegatum). Víða.