82 NATTURUFRÆÐINGURINN Herðubreiðarfjöll (Trölladyngjur ytri?) séð frá S. Ljósm. Edvard Sigurgeirsson. Hannes Finnsson segir í ritgerðinni Mannfækkun á íslandi af hallærum, (Lærdómslistafélagsrit 1793) að Trölladyngjur hafi gosið 1152 og nefnir eftirfarandi vetur sóttarvetur. Jónas Hallgrímsson telur (Rit J. H. IV. bls. 164) að klaus- an: ,.Húsrið og manndauði", sé óræk sönnun þess, að gosið hafi verið í suðvesturhluta landsins, því þeim gosum fylgi mestir landskjálftar og óhollnusta. Þessi rök eru ákaflega hæpin. í hinni fáorðu frásögn þarf ekkert beint samband að vera milli setninganna: Eldur í Trölladyngjum" og Húsrið og manndauði." Landskjálfti og manndauði hafa oft gert usla hér á landi, þótt ekki hafi valdið eldgcs, og óhollusta og tjón af gosum mun venjulega hafa farið meira eftir því, hvort um öskugos eða hraungos var að ræða, heldur en hinu, hvar á landinu gosin voru. Frásögnin er ákaflega fáorð, sem bendir til þess, að gosið hafi verið fjarrd mannabyggðum og því lítið um það vitað. Það er ósennilegt, að ekki hefði verið sagt fleira frá gosi á Reykjanesi, eða einhver örnefni nefnd í sambandi við það. Mér virðist því sennilegast, að gos þetta hafi verið í Trölladyngjum í Ódáðahrauni.