NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 85 dó íénaður, naut og sauðir, um Rangárvelli eyddust nálægt 5 hreppar, annar eldur í Hnappavallajökli, þriðji í Herðubreið yfir Fljótsdalshéraði og vóru allir jafnsnemma uppi.Eldsuppkoma með þeim fádæmum, að eyddust margar nálægar sveitir. Öskufall um Borgarfjörð og Skaga svo fénaður féll og hvarvetna þar á milli." Hér er sagt frá gosi í Herðubreið. Auðvitað hefir Herðubreið ekki gosið svona seint, en vel gat gosið borið svo við, eða verið í nágrenni Herðubreiðar og var þá eðlilegt að kenna það við þetta nafnkunna fjall. Heklugcs hafa ekki öll verið í Heklu sjálfri og Kröflugosin 172530 voru ekki í Kröflu, heldur í ná- grenni hennar. Sennilegt er, að þetta Herðubreiðargos hafi verið í Herðubreið- arfjöllum, en þau hafa vafalaust verið nefnd dyngjur og ef til vill Trölladyngjur ytri og getur þá vel staðizt, að gosið sé ýmist talið í Herðubreið eða Trölladyngjum. Svo er ekki heldur ósenni- legt, að samtímis gosi í Herðubreiðarfjöllum, hafi gosið í Trölla- dyngjum, þ. e. Dyngjufjöllum. Árið 187.5 gýs til dæmis bæði í Dyngjufjöllum og í Sveinagjá, sem er miklu norðar á öræfun- um. ÖII þrjú gosin, sem Isl. ann. segja frá 1341, hafa líklega verið ösku- eða vikurgos. Heklugosið gerði mestan usla um Rangárvelli, en langsennilegast er, að askan, sem féll um Borg- arfjörð og Skaga og allt þar á milli, hafi komið frá Trölla- dyngjum í Ódáðahrauni. Að öllu þessu athuguðu, er það ákaf- lega sennilegt, að Trölladyngjur í Ódáðahrauni hafi gosið 1340 eða 1341, að minnsta kosti má fullyrða, að þessi ár hafi gosið einhversstaðar í nágrenni þeirra. 4. íslenzkir annálar skýra frá mikilli eldsuppkomu í Trölla- dyngjum á tímabilinu 13541360, en frásagnirnar um gos þetta eru mjög á reiki cg ónákvæmar og hafa gefið tilefni til ýmis- konar ágizkana. Tel ég því rétt að rekja hér umsagnir heim- ildanna hverja fyrir sig. Skálholtsannáll 1354 segir svo: Eldsuppkoma í Trólladyngj- um og eyddust margir bæir í Mýdal af öskufallinu, en vikurinn rak vestur á Mýrar og sá eldinn af Snæfellsnesi." Gottskálksannáll 1357: Eldsuppkoma í Trölladyngjum, leiddi þar af ógnir miklar og dunur stórar, öskufall svo mikið að nær alla bæi eyddi í Mýdalnum og víða þar nálægt gerði mikinn skaða. Vikurreki svo mikill austan til, að út frá Stað á Snæfells- nesi rak vikurinn og enn utar."