92_________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ÞÓRODDUR GUÐMUNDSSON frá Sandi; EIÐAHÓLMI Þegar ekið er veginn út Fljótsdalshérað frá Egilsstöðum, sést á vinstri hönd vatn, sem lætur lítið yfir sér. Út í það ná ýmsir tangar og nes með víkum á milli. Þetta er Eiðavatn. Umhverfis það eru móar, mýraflákar og ásar. Ásarnir eru grasivaxnir hið neðra með vallgróðurbrekkum og hvömmum. En að ofan eru þeir á köflum berar klappir, heflaðar af ísaldarjökli eða huldir möl og leir. Á þessu landi óx hinn forni Eiðaskógur, þegar land allt var skógi vaxið að húsum heim" á Eiðum, og mátti hvergi sjá mannaferðir," svo sem segir í Fljótsdælasögu.*) í þessum sama skógi gerðist sagan af Jóni á grænum kjól, eða örlagaríkasti þáttur hennar, því í Fiskilækjarskógi, vestan Eiðavatns, drap Jón Sigfús leikbróður sinn, af því hann varð Jóni hlutskarpari í ástamálum.**) Hvílir yfir nafni skógarins einu saman dulmagn- aður æfintýrablær. En Eiðaskógar sjást nú litlar me"njar, nema örsmáir viðarteinungar, sem fénaður bi'tur jafnharðan og þeir vaxa, og kolagrafir víðsvegar umhverfis vatnið. Sýnir þetta tvennt, hvað ráðið hefir úrslitum um afdrif skógarins. Á einum stað eru þó glæsilegar eftirstöðvar hins forna skógar. Þær eru í Eiðahólma. Eiðahólmi er um 3 dagsláttur að stærð. Undirstaða hans er bergás, sem stendur upp úr vatninu. Hann er þakinn frjóum jarðvegi, og er allur skógi vaxinn. Áður var hólminn stærri en minnkaði allverulega, þegar Eiðavatn hækkaði, er Fiskilækur var virkjaður og stíflaður 1935.*) Sá lækur rennur úr Eiðavatni í Lagarfljót. Skal nú hólma þessum lýst nckkru nánar. Eiðahólmi snýr frá norðri til suðurs og er allmiklu meiri á þann veg en hinn. Vatnið umhverfis hann er alldjúpt. Gróðri er þannig varið, að *) Fljótsdæla saga, 31. kap. **) Sigfús Sigfússon: fsl. þjóðsögur og sagnir I., bls. 8185. *) Skýrsla um Alþýðuskólann á Eiðum 19351936, bls. 3335.