94_________________ NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN____________________ og loftið er fyllt áfengum ilmi hans. Fiðrildi svífa milli trjá- toppanna og yfir lynginu iðar allt af suðandi lífi skordýra. Randaflugur og vespur leika sér á sveipum hvannanna. Loftið titrar en fjöllin í fjarska og ásar og stapar við vatnið spegla sig í sléttum fleti þess. Fuglar setja líka svip á hólmann. Spörfuglar vagga sér í trjá- greinum. Endur og gæsir byggja stundum hreiður í lynginu. Á vatninu synda lómar cg himbrimar og rjiúfa stundum kyrrð- ina ásamt með öldugjálfri og þyt í skóginum. Eiðahólmi er einn af demöntum í náttúru Fljótdalshéraðs og þótt víðar sé leitað. Hanrt er eyðiey, sem þó er byggð miklu fjórra og gróskumeira lífi en landið íf grennd, þar sem manns- höndin og munnar sauðfjárins hafa hjálpað eyðingaröflum eld- gosa og vorkulda til að halda vaxtarviðleitni gróðursins í skefj- um með átakanlegum árangri. E. t. v. er það einmitt þetta, sem vekur mesta athygli og jafn- vel aðdáun á þessum litla stað. Allt hans græna, fjölbreytta og ilmandi líf myndar svo sterka andstæðu við vatnið, gráa mela og gróðurvana ása umhverfis það. Gesturinn trúir varla sínum eigin augum né öðrum skynjunum og spyr sjálfan sig: Getur þetta verið satt? Hefir maðurinn farið slíkum eyðingareldi um ísland á liðnum öldum, alls staðar, þar sem hann hefir komið bolmagni við? Ég held, að öllum, sem koma í Eiðahólma, hitni um hjartað, þegar þeir hugsa til þess, að svona fagurt gæti ísland verið allt, milli fjöru og fjalls, ef mennirnir ekki stæðu í vegi þess. Og mundu eigi slíkar hugleiðingar geta verið mönnum hvöt dáða? Eiðahólmi er einskonar Eden, þar sem jurtirnar hafa átt friðland. Hann er helgistaður. Þar má enginn skerða blað á björk né rífa upp blóm með rótum. Staður þessi á að njóta friðunar, umhyggju og verndar. Þá getur hann á ókomnum tímum sýnt gestum sínum mynd af því, hvernig landið á að vera, og minnt þá á heilaga skyldu allra íslendinga: Hann getur hvatt þá til að klæða landið skógi. Gróður í Eiðahólma. Aðalbláberjalyng (Vaccinum myrtillus). Augnfró (Euphrasia officinalis). Axhæra (Luzula spicata). Beitilyng (Calluna vulgaris).