Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1946, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1946, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 83 Ingólfur Davíðsson: Kynlaus fjölgun Flestir liafa einhvern tíma sáð fræi og sett niður kartöflur. Fræin eru til orðin í blómunum við kynæxlun, þ. e. samruna frjós og eggs. En kartöflur myndast ekki í jurtablómum, heldur neðan jarðar. Þar eru engin fræ heldur hýði, full af matarforða, til orðin á kynlausan hátt. — Kynlaus fjölgun er mjög mikið notuð í garðyrkjunni. Við setjum niður lauka og kartöflur, skiptum rabarbara og ýmsum fjöl- ærum blómjurtum, tökum græðlinga af fjölda skrautblóma o. s. frv. Þannig er tryggt að eiginleikar móðurjurtarinnar gangi að erfð- um, því að laukarnir, kartöflurnar, rótarhnausarnir og græðlingarn- ir erfa alla eiginleika móðurinnar og aðeins hennar; þeir eru bein- línis ldutar 'af henni. Séu vaxtarkjörin eins, fá afkvæmin sama blómalit, hæð, vaxtarlag o. s. frv. og móðirin. í jurtum, öldunt upp af fræi ,er aftur á móti jafnan hætta á nokkrum breytileika; enda hafa þær jurtir erft. tvo foreldra og getur brugðið til beggja ætta. Þegar fjölga skal kynblendingum, er kvnlaus fjölgun venjulegast nauðsynleg, því að þeir bera sjaldan fræ og erfðirnar eru ótryggar við kynæxlun. Margar skrautúlfabaunir (lúpínur) t. d. æxlast ekki af f'ræi, þannig að blómalitur sé tryggur. En auðvelt er að skipta þeim eða taka af þeim græðlinga. Græðlingum má skipta í tvo flokka mjúka og harða. Mjúkgræðlingar eru teknir af nýjum sprotum. Þeir þola illa þurrk og eru þess vegna oftast hafðir inni í gróðurhúsum eða reitum fyrst í stað, unz þeir hafa skotið rótum og eru færir um að afla sér vatns. Harðir græðlingar eru aftur á móti teknir af eldri sprotum. Þeir þola betur þurrk en hinir, svo að oft gengur vel að fá þá til að festa rætur úti. Oft festa græðlingar auðveldast rætur ef tekinn er hliðarsproti og látið fylgja fjgn af greininni eða stofninum, sem hún stóð á. Fjölga má mjög mörgum jurtum, trjám og runnum með græðlingum, þótt ekki sé allur gróður jafn auðgróa. Jafn raki, góð, unnin mold, skjól og skýli fyrir sterku sólskini, eru nauðsynleg skilyrði. Nóg loft verður að vera í jarðveginum. Er þá gott að hann sé sendinn, eða ef hann er heitur, er gott að blanda kókoshnetutrefj- um eða þvílíku saman við moldina. Ef græðlingar eru settir í jurta- pott — sumir í rniðju ,en aðrir út við hliðarnar, — þá festa þeir síðar- nefndu venjulega mun fyrr rætur heldur en þeir í miðjunni. Orsök- in er sú, að hliðar pottanna eru gisnar og loftræstingin betri þar en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.