NATTURUFRÆÐINGURINN 29 Ingólfur Davíðsson: Stærstu trén og hin elztu íslenzk tré verða sjaldan meir en 810 m á hæð og 60100 ára gömul. Stundum vaxa þó nýir stofnar upp af rótarsprotum, þótt gamli aðalbolurinn falli. Á árunum 18201830 gxóðursettu þeir Þorlákur Hallgxímsson í Skriðu i Hörgárdal og Björn og Jón synir hans allmörg tré í Skriðu og Fornhaga. Lifa sum þeirra enn og munu þarna vera elztu trjágarðar á íslandi. Stefán Stefánsson, grasafræðingur, mældi trén í Skriðu og Fornhaga 29. júlí 1888 (skv. ársriti Ræktunarfélags Norðurlands 1909). Voru hæstu trén í Forn- haga þá 16 fet (reyniviðir). í Skriðu var stærsta birkið og stærstu reyniviðirnir 20 feta há. Haustið 1949 mældi Ingólfur Guðmunds- son kennari og bóndi í Fornhaga trén á báðum stöðunum. í Forn- haga lifðu 6 reynitré 1888, en tvö féllu á árunum 19401945 og eitt nokkru áður. Hin 3, sem eftir lifðu, mældust 7,45 og 7,60 m á hæð. í Skriðu lifðu 11 gömul reynitré og 3 birki. Voru hæstu reynitrén 10,46, 10,50 og 10,65 m á hæð, en hin um metra lægri, öll mjög gildvaxin. Munu þau varla hafa hækkað neitt teljandi síðan. Þessi tré eru þá sennilega 140150 ára gömul (frá gróðursetningu). Jónas skáld Hallgrímsson kom að Skriðu til Þorláks 10. júlí 1839 og segir frá trjánum. Reynitrén voru öll sprotar af hinni frægu Möðrufellshríslu, sem var ævagömul stór villt hrísla í Möðrufells- hrauni. Um hana eru til þjóðsögur, sbr. líka kvæðið í Eyjafirði aldinn stendur reynir". Enn vex reynir þarna í Möðrufellshrauni, e. t. v. vaxinn upp af rótarsprotum frá hinni gömlu hríslu. Við kirkjuna í Laufási við Eyjafjörð voru gróðursett reynitré 1849 og 1853. Aðalstofn eldra trésins féll í ofsa krapaveðri 30/1 1947 og var rúmlega 11 m á hæð. Árhringarnir voru taldir og virtust vera 9899. Hríslan mikla í Nauthúsagili undir Eyjafjöllum var fræg fyrir grózku og aldur. En rótarangi frá henni náði líka inn undir gamalt fjárbæli og saug næringu þaðan. Þessi mikli reyniviður er fallinn, en nýir rótarsprotar vaxa upp og endurnýja hann. Lík- legt má telja, að útlendar tegundir garðtrjáa og skógartrjáa nái