NATTURUFRÆÐINGURINN 31 1. mynd. Konungseikin danska (Quercus robur). 45 m. í Noregi eru hinar hæstu um 30 m. 15 manns áttu að geta staðið inni í bol hinnar frægu 21 m háu Landaeikar í Setesdal". Hookereikin fræga í Kaliforníu er um 30 m á hæð og afar gild- vaxin. Reiknað hefur verið út, að 7800 manns geti staðið í einu undir greinum hennar. Hvílíkur samkomusalur. Háskólabíó tekur 987 manns í sæti, Austurbæjarbíó 800 (Hve margir geta staðið í skólastofu ykkar, ef hverjum manni eru ætluð 2 ferfet?)-----Fyrrum var mikil helgi á eikartrjám víða um Evrópu. Eikin var eldtré, helguð þrumugoðinu Þór og þurr eikarflís var notuð til að tendra eld með