32 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 2. mynd. Hookereikin (Quercus labata). núningi, við trúar- og töfraathafnir. Á íslandi þrífst eikin illa og verður varla annað en runni. Holtasóley er lág í loftinu, en mjög fögur í blómi. Vöxtur trékenndra stöngla hennar er afar hæg- ur, en menn hafa talið í þeim 100 árhringa hérlendis. Smjörlaufið eða grasvíðirinn skríður við jörð og er minnstur trjáa" sagði grasafræðingurinn Linné. En hann getur orðið um aldargamall. Hvern skyldi gruna, að hann geti náð álíka háum aldri og björk eða reynitré?------Þið hafið lesíð um ask Yggdrasils í goðafræðinni. Askur (Fraxinus excelsior) í Rvík er eitt hið hæsta garðtré á íslandi nú. Á Norðurlöndum verður askurinn mikilfenglegt tré, með afar umfangsmikla krónu, allt að 32 m í þvermál, og um 20 m á hæð. Sjaldan verður askurinn eldri en um 200 ára. Sunnar í Evrópu getur askurinn orðið 3040 m á hæð. Ekki er furða þótt hentugt þætti forðum að halda mannfundi undir hinum miklu laufhvelf- ingum skógareika og asktrjáa.----------Okkur þykir aldargámalt tré, 1012 m á hæð, merkisgripur. En lítið verður úr því í samanburði við mestu risatré veraldar og öldungana í ríki skóganna. Risafururnar vestur í Kaliforníu eru heimsfrægar. Þetta er eins og að ganga í gotneska dómkirkju," varð ferðamanni að orði, er hann var leiddur í risafurulund. Maður skynjar eilífðina og smæð