34 NATTURUFRÆÐINGURINN sína. Spánverjar komu til Kaliforníustranda árið 1602, en risafuru er fyrst getið í rituðu máli 1769. Þá óx önnur tegund þeirra, rauð- viðartréð (Sequoia sempervirens) á stórri strandlengju. Síðan hefur miklu verið eytt, einkum á 19. öld, og timbrið notað í byggingar. Viðurinn er góður, rotnar seint og verst furðanlega ásókn skordýra. Hinn þykki börkur er hentugur til einangrunar o. fl. nota. Úr einu risatré fást allt að 95 rúmmetrar fyrsta flokks timburs; en þá hefur tréð vaxið í 500 ár. Hve stóran skóg grenis eða furu á Norðurlönd- um skyldi þurfa til jafns við þetta eina tré? Árið 1919 var stofnað félag til friðunar risafurunnar, sem var í útrýmingarhættu. Félaginu hefur orðið mikið ágengt, þótt bæði sé við menn og náttúruöfl að stríða. Rót risafurunnar gengur ekki djúpt í jörð, heldur vaxa langar rætur til allra hliða fremur grunnt í jarðveginum. Ef t. d. stórrigningar skola burtu miklum jarðvegi, falla trén, jafnvel hóp- um saman í ofveðri. Það gerðist t. a. m. árið 1959. Rauðviðar- nafnið (Redwood) kemur til af því, að nýsagaður viðurinn er rauð- leitur. Vísindanafnið Sequoia er kennt við frægan Indíánahöfð- ingja með því nafni. Hann vann alla ævi í risafuruskógunum, en var fleira til lista lagt en hæfni til skógarvinnu, og gat sér sérstaka frægð með því að búa til stafróf í Indíánamálum. Síðara nafnið sempervirens þýðir hið sígræna. Rauðviðartréð er beinvaxið og hið spengilegasta. Hið hsta fannsl, árið 1963 og mældist rúmir 112 metrar á hæð; stofninn 4^4 m í þvermál og 13,4 m að ummáli í brjósthæð. Hugsið ykkur hvílíkt tré. Turn Hallgrímskirkju á Skóla- vörðuhæð er 74 m að krossi meðtöldum, en rúmir 70 m upp að honum. Risatréð gnæfir með öðrum orðum nærri 40 m yfir kirkjuna. Akureyrarkirkja er 24 m há upp á turna, eða nær helmingi hærri en hæstu tré á íslandi, en dvergur er hún hjá risafurunni miklu. Akureyrarbrekka er 4050 m há. Hugsum okkur að risafuran stæði undir brekkunni á hlaði hótel K.E.A. Hún mundi samt gnæfa hátt hátt upp yfir kirkjuturnana. Hugsum okkur líka að 11 hæstu trén á Akureyri og í Reykjavík stæðu hvert ofan á öðru. Hið efsta mundi þá teygja toppinn álíka hátt til himins og risafuran mikla. Það veitir ekki af að keyra hnakkann á bak aftur, eins og Æsir gerðu forðum, ef horfa skal upp í hinn sígræna trjátopp Indíána- höfðingjans. Risatréð fyrrnefnda vex í Creeklundi í Humboldt í N.-Kaliforníu. í grenndinni standa fleiri risar, t. d. Arco 77 m á hæð, eða sjö