Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						____________________NATTÚRUFRÆÐINGURINN_________________35

metrum hærri en reykháfarnir á fiskimjölsverksmiðjunni á Kletti

í Reykjavík, eða sementsverksmiðjunni á Akranesi. Hugsið ykkur

tré á hæð við þessa strompa. Bolur Arco er 5,8 m í þvermál og

ummálið 18,3 metrar. (Berið herbergi ykkar eða skólastofu saman

við það ummál.) — Elzta rauðviðartré, sem sögur fara af, varð 2200

ára gamalt, eða helmingi eldra en íslandsbyggð. Það hefur verið

orðin allvæn hrísla á Krists dögum. — í Underwood Park stóð frægt

rauðviðartré, sem ferðalangar kepptust við að skoða og ljósmynda.

Það var gerður bílvegur í gegnum það árið 1881, en tréð féll í maí-

byrjun 1969. Þá var það 2 þúsund ára gamalt og 78 m hátt. Turn

Landakotskirkju hefur vart náð trénu í mitti og það hafði aðeins

vinninginn á við turn Hallgrímskirkju. Hugsið ykkur tré á Skóla-

vörðuholti, sem teygði toppinn yfir krossinn  á  Hallgrímskirkju-

turni.----------Rauðviðartré vaxa oft upp af rótarsprotum, svo að

stundum vex lundur ungtrjáa kringum bol gamals risa. Rauðviðar-

trjáfræi er oft sáð úr þyrlum og fræi Douglasgrenis blandað saman

við, því að grenið vex fljótar og bindur jarðveginn. Fjölgun fer

einnig fram með græðlingum og sprotum. Hafa jafnvel sprotar

vaxið út úr trjábol, sem legið hafði fallinn í 10 ár. — Talið er, að

risafura hafi vaxið í norðlægum löndum, þ. á m. á íslandi, fyrir

milljónum ára.

Árið 1858 vísuðu Indíánar hvítum mönnum á risafuruskóg í

vesturhlíðum Snæfjalla (Sierra Nevada), þar sem gildustu og mikil-

fengiegustu tré veraldar vaxa. Voru þau í fyrstu kölluð risatré

(Mammúttré) og rauðviðartré eins og hin, enda skyld og svipuð.

Síðar reyndist þetta önnur tegund, þ. e. risafuran Sequoia gigantea.

Raunar teljast báðar tegundirnar til sérstakrar deildar, en eru ekki

eiginlegar furur (Pinus). — Fræ risafuru eru svo smá, að í einu

grammi eru um 100 fræ. Mikil sútunarsýra bæði í viði og berki er

ágæt vörn fyrir rotnun og skordýrum. Bolir, sem legið hafa fallnir

öldum saman, geta reynzt óskemmdir. Börkurinn verður 50—60

cm á þykkt, stofninn 10—12 m í þvermál við jörð, eða 35—38 m að

ummáli á stærstu trjánum. 8 manns geta gengið samhliða á felldum

bol risafuru. Dansgólf var gert úr þversneið risafurubols og komust

þar fyrir 16 pör. í grasafræðideild ríkissafnsins í Stokkhólmi er til

sýnis sneið af risafuru með 2410 árhringum. Sneiðin er söguð úr

tré, sem féll í stormi í Kaliforníu árið 1940. Talið er, að þetta tré

hafi vaxið úr grasi 80 árum eftir orustuna frægu við Maraþon. Við

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48