Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						36_________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN___________________

Krists fæðingu var það orðið stórt tré, 1,5 m í þvermál, og 470 ára

gamalt. Árið 530, þegar Ynglingar ríktu í Svíþjóð, var það þúsund

ára og tvö þúsund ára á dögum Jóns biskups Arasonar. Á heimssýn-

ingunni í Bruxelles árið 1958 var sýnd 9 m breið þversneið úr bol

risafuru. Þyngdin var 11 tonn. Kannski hefur vindurinn þotið í

greinum þessa trés þegar Odysseifur sigldi og Faraóarnir voru að

bjástra við pýramídana sína? Sumar miðaldra risafurur hafa vaxið

upp af fræi á Krists dögum. — Innri hluti viðar aldinnar risafuru

hefur verið dauður öldum saman. Aðeins innsta barklagið og

yztu viðarhringirnir í slíku risatré eru lifandi og annast upptöku

vatns og flutning næringarefna.

Risafurur eru mjög lífseigar og hafa lifað marga skógarelda,

sumar að vísu stórsærðar, t. d. „hellistréð" fræga. Skógareldur

brenndi fyrir löngu helli inn í stofninn. í annað tré, „fallna ein-

valdinn", brann svo stór hola, að maður bjó þar um skeið og

hestar voru hýstir þar inni. Dæmi eru þess, að 20 metra langar

brunarifur hafi gróið og tréð lifað.

Bæði stærstu trén og mikilvægir risafurulundar bera sérstök nöfn.

Víðfrægur er Sherman hershöfðingi (General Sherman), 83 m hár,

þvermál 111/4 m, ummál í brjósthæð 35—36 m og þyngdin áætluð

2 þúsund tonn. Aldur sennilega 3500 ár. Þetta tré er talið stœrsta

lífvera á jörðinni. 10 menn, sem skipa sér í hring og haldast í

hendur, ná með naumindum utan um Sherman. Hann er enn í

fullu fjöri og lifir e. t. v. þúsund ár enn.------í sama skógarlundi

standa fleiri fræg tré, t. d. Lee hershöfðingi I. og McKinley, 89 m

á hæð, o. fl. risatré. — Síðan 1940 eru þarna 2 þjóðgarðar með 24

risafurulundum. — Alkunnur er líka lundur Grants hershöfðingja.

í honum stendur General Grant, sem er að vísu varla eins stór og

Sherman, en þykir mun fegurri. Þetta tré er kjörið jólatré Banda-

ríkjaþjóðarinnar, og eru jólasiðir hafðir um hönd undir greinum

þess ár hvert. Það kallast þjóðlegur helgidómur, til minningar og

heiðurs föllnum hermönnum.

Á fyrri jarðsögutímabilum uxu ýmsar tegundir risafurudeild-

arinnar víða á norðurhveli jarðar. Það sanna steingervingar í

jarðlögum. En þær tegundir dóu víðast hvar út, e. t. v. á ís-

aldartímabilum — og ekki þrífast risafurur lengur á Islandi. I

Kaliforníu hafa risafurur sennilega lifað í tugmilljónir ára —

og lifa þar enn.  — — — Frá  jarðlagarannsóknum  þekktu  menn

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48