NATTURUFRÆÐINGURINN um 7 m á hæð í Hallormsstaðaskógi. (Hve gamlar skyldu þær ann- ars verða?) Vitanlega eru til margar tegundir langlífra trjáa í heiminum og fleiri en fyrr var getið. Sumir telja, að kýprisviðartegund (Cupressus dupreziana) í útjaðri Sahara keppi við broddfuru og risafuru að aldri. Kannski hafa hin ævagömlu kýprisviðartré verið komin á legg áður en Sahara varð eyðimörk. Fornminjar ýmsar langt inni á Sahara gefa til kynna, að fyrr á tímum hafi loftslag verið þar miklu rakara en nú og mikil byggð og menning. Þykkt árhringa í trjám gefur mikilsverðar bendingar um veðurfar liðins tíma. Öldung- arnir" í riki trjánna vitna jafnvel þúsundir ára aftur í tímann. Mexíkanar státa af hinu mikla tré", fenjakýpristrénu (Taxodium mucronata), í Santa Maria del Tule. Það er áætlað 5 þúsund ára, en ekki er þó öruggt um aldurinn. íslenzka þjóðin er sem ungling- ur í samanburði við þessi Metúsalemstré" í Ameríku og Afríku. En fleiri afgömul tré vaxa í veröldinni. Sedrusviðurinn frægi á Líbanonfjöllum getur orðið æði gamall. Salómon konungur þiljaði musterið með sedrusviði og Fönikar notuðu hann við skipasmíði. Viðurinn er endingargóður og ilmandi. Oliutréð, sem um getur í biblíunni, er ræktað í Miðjarðarhafslöndunum og víðar. Þaðgetur að minnsta kosti orðið 8001000 ára gamalt. Linditré eru til í görðum í Reykjavík, en lítils vaxtar. í hlýrri löndum verða linditré 2040 m há, með mjög gildum bol og afarstórri krónu. Talið er, að til séu í Evrópu 700800 ára gömul linditré. Hlynur þrífst sæmi- lega í góðum görðum á Islandi. Hann getur orðið mörg hundruð ára gamall. Kastaníutré og platan verða mjög gömul í Miðjarðar- hafslöndunum. Svona mætti lengi telja. Talið er, að flestar lang- lífar trjátegundir vaxi fremur hægt framan af. Margar hávaxnar trjátegundir eru til í heiminum auk hinnar fyrrnefndu risafuru. Sumir telja tröllatré (Eucalyplus amygdalina) hæsta tré veraldar, allt að 140 m hátt. Með vissu vita menn um 98 m hátt tröllatré á eyjunni Tasmaníu í Ástralíu og annað í Viktoríu í sömu álfu 93 m hátt. í Ryderwood í Washingtonríki stendur 99 m hátt Douglasgrenitré. Enn er raunar efamál, hvaða tré skuli telja elzt í heimi og hvaða tré sé hæst, eða geti náð mestri hæð. En sem stendur má telja broddfurur, risafurur, sumar kýpristegundir, olíutré, eikur, linditré o. fl. til aldursforseta í ríki trjánna. Og mestu trjárisarnir eru risafurur, tröllatré, Dougiasgreni o. fl., sem