42 NATTURUFRÆÐINGURINN brún munnans allbuguð niður í halann. Saum- urinn skálægur. Tveir efstu vindingar hyrn- unnar með sléttu yfirborði, að öðru leyti eru vindingar hyrnunnar með tveimur grófum þvergárum og grunnvindingur með a. m. k. fimm grófum þvergárum auk nokkurra fínni þvergára, er ná niður að halanum. Fínir, en mjög áberandi skálægir langgárar liggja frá saumnum að efsta þvergára hvers vindings og síðan lóðrétt á þvergárana og verður kuð- ungurinn af þessu rúðumynstraður. Lengd 4 mm. Tegundin finnst m. a. meðfram Noregi frá 30 metra dýpi og niður á djúpsævi. 1. mynd. Rúðubobbi. Taranis mörchi (G. O. Sars). 2. Rissoa inconspicua Ald. (Syn. Turboella inconspicua Ald.) Ægisperla Tegund þessi tilheyrir bauguættinni (Rissoidae), en af þeirri ætt eru áður kunnar við ísland 11 tegundir, er tilheyra fjórum ætt- kvíslum, engin þó ættkvíslinni Rissoa. Öllum tegundum þessarar ættar er það sameiginlegt að vera fremur smávaxnar. í maí 1963 fékk ég tvö eintök úr uppdælingarsandi við Melakrika í Faxaflóa. í október 1968 fékk ég svo eitt eintak úr ýsu, er veiddist í Faxaflóa á 80 metra dýpi í VNV frá Akranesi. Öll eru eintökin jafn stór, eða 3 mm á lengd. Tegund þessi er allbreytileg, bæði lögun, stærð og skellitur, og gerir það nokkuð erfiðara um vik við teg- jS^ 5". undarákvörðun. Virðist sumt benda til, að lit- ur og mynsturgerð skeljarinnar sé að einhverju leyti tengt útbreiðslusvæðum tegundarinnar. Á hinum íslenzku eintökum er skelin þunn, hálfgagnsæ og gljáandi. Vindingar 6 og eru vindingar hyrnunnar með mjög vægt upp- hækkaða lengdargára, er ná aðeins niður á grunnvinding, sem er um 2/s af skellengd. Skelin með naflarauf. 2. mynd. Ægisperla, Rissoa inconspicua (G. O. Sars).