46 NATTURUFRÆÐINGURINN nitidum Jenyns (ófundin hérlendis) að undanskildu því, að P. nitidum hefur 35 grófar og áberandi lengdarrákir við nefið, sem telja má eitt aðaleinkenni þeirrar tegundar. H. A. Schlesch getur um rákaskelina í ritgerð sinni 1921: Land- og vatnalindýr á Islandi", en í ritgerð sinni 1930, Notes sur la faune malacologique du Groenland et de l'Islande", (Journ. de Conc. 74), hefur hann fellt tegundina niður af skrá yfir íslenzk lindýr og í Zoology of Iceland", Vol. IV Pt. 65, telur G. Mandahl- Barth vafasamt, hvort tegundin lifi á íslandi og byggir þá ályktun á skýrslu Schlesch frá 1930. í bók sinni Blöddyr III Ferskvands- blöddyr", Danmarks Fauna 54, útg. 1949 getur G. Mandahl-Barth þess, að tegundin sé útbreidd frá íslandi til Moskvu og Ungverja- lands og þaðan norður um Svíþjóð að 65. gráðu norðurbreiddar. Engin nánari skýring er frá hans hendi um tegundina á Islandi og hana hvergi að finna. Auk framannefndra útbreiðslusvæða er tegundin algeng í Dan- mörku, Noregi og Englandi. Tegundir af ættkvíslinni Pisidium eru útbreiddar um allan heim og virðast eiga öðrum vatnaskeljum auðveldara með að samlagast breytilegu umhverfi. Þær hafa fundizt víðast hvar þar sem vatn er, bæði djúpt og grunnt, stundum í nær uppþornuðum forarpyttum. Sumar tegundir lifa jafnvel milli rakra blaða, eða í rökum mosa á mörkunum milli lands og vatns. Ekki er ólíklegt, að framannefndar vatnaskeljar eigi eftir að finnast víða hérlendis, en athuganir á skeldýralífinu í vötnum, ám og landi eru næsta litlar hérlendis og verður það að teljast næsta furðulegt, þegar haft er í huga, hve þýðingarmiklu hlutverki skel- dýrin gegna fyrir annað dýralíf, m. a. fiska og fugla. SUMMARY Five Mollusca species new for Iceland by Lúðvik Jónsson The author reports on five species of Mollusca to the Icelandic fauna. Three of them are of the class Gaslropoda, and two of the class Lamellibranchiata, freshwater mussels. The new species are as follows: