__________________NATTURUFRÆÐINGURINN________________47 Taranis mörchi Malm., Rissoa inconspicua Ald., Hydrobia ulvae Penn. of the class Gastropoda and Pisidium personatum Malm. and Pisidium pul- chellum Jenyns of the class Lamellibranchiata. The species T. mörchi and R. inconspicua have been collected from stomachs of haddock in the Bay of Faxaflói, at 40140 metres depth. The shells look so fresh that they undoubtedly were alive when they were de- voured. The species Hydrobia ulvae have been collected from the south coast of Iceland, between Stokkseyri and Eyrarbakki and east of Stokkseyri. The species Pisidium pulchellum and Pisidium personatum have been col- lected near Þurá, Ölfusi, S.-Iceland. Ingólfur Davíðsson: Blómgun á undan lauf gun Ýmis tré og runnar bera blóm fyrir laufgun, t.d. flestar víði- tegundir, svo sem selja, viðja og að miklu leyti gulvíðir. Loðviðir einnig, það er karlreklarnir koma á undan laufgun, en kven- runnarnir bera kvenrekla sína meir jafnóðum og þeir laufgast. Smjörlauf eða grasvíðir blómgast um leið og það laufgast.G//á- viðir (Salix pentandra) hegðar sér öðru vísi, hann ber ekki rekla fyrr en eftir að hann er allaufgaður. Karlreklar á birki springa oft út ögn fyrir laufgun. Kvenreklar síðar. Ribs og gullregn blómgast áður en blöðin hafa náð fullri stærð. (Ribsblöðin þá venjulega enn mjög smá). Svipað má segja um t.d. aðalbláberjalyng. Krkilyng er sígrænt, en blöð þess eru venjulega ekkert farin að ,lifna til vorsins' og ný blöð ókomin, þegar hin litlu, rauðleitu blóm sjást. Sumar jurtir hafa samsvarandi blómgunartíma. Skollafótur kló- elftingar grær mjög snemma og hann ber gróin. Grólausu stöngl- arnir greinóttu vaxa síðar. Hinn hreistraði blómstöngull hóffifils ber hina gulu körfu sína snemma, en blöðin stækka fram á haust.