48 NATTURUFRÆÐINGURINN Sitt af hverju Stærstu og minnstu skordýrin. Golíat-bjallan (Goliathus regius) í Vestur-Afríku er talin stærst allra núlifandi skordýra. Hún getur orðið tæpir 15 cm á lengd og um 95 grömm á þyngd. Nokkrar aðrar bjöllutegundir geta orðið lengri, en ekki eins þungar. Til dæmis getur langhyrnda bjallan (Batocera ivallacei) á Nýju-Guineu orðið nálægt 26 cm á lengd, að fálmurum meðtöldum, en þeir eru líka meira en helmingi lengri en bolurinn. Minnstu skordýr, sem menn vita um, er bjöllutegund af ættinni Trichopterygidae og sníkjuvespa, sem telst til Mymaridae-ættarinn- ar. Þær eru aðeins 0,2 mm á lengd, og vænghaf sníkjuvespunnar er 1 mm. Tegundin Caraphractus cinctus getur verið allt niður í 0,005 mg á þyngd og egg hennar eru svo smá, að um 5 millj. eggja fara í grammið. Léttlyndur froskur. Hláturfroskurinn (Rana ridibunda) á aðalheimkynni sín í Aust- ur-Evrópu. Hann getur orðið um 12 cm á lengd. Sumarið 1949 fundust nokkrir froskar á Borgundarhólmi, sem í fyrstu var talið, að tilheyrðu grænu froskunum (Rana esculenta). En á þingi skrið- dýrafræðinga árið 1953 var m.a. spiluð plata með upptöku á hlátri" froska frá Þýzkalandi, og kom þá í ljós, að hljóðin líktust mjög þeim, er froskarnir á Borgundarhólmi höfðu gefið frá sér. Árið eftir fengu svo dönsku froskarnir sína hljómplötu" og var þá ekki um að villast, að hláturfroskurinn hafði tekið sér bólfestu á Borgundarhólmi.