Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 27
Árni Hjartarson „Pá hljóp ofan fjallit allt“ Framhlaup í Skriðdal á landnámsöld. INNGANGUR Skriðdalur gengur inn af Fljótsdals- héraði austanverðu og teygir sig til suðurs um 40 km að vatnaskilum á Oxi. Um miðja byggð greinist hann í tvennt af Þingmúla sem Múlasýslur heita eftir, en undir honum var Múla- þing háð. Austan Múlans er Suðurdal- ur sem í daglegu tali er oftast nefndur Skriðdalur eins og aðaldalurinn og er þeirri venju haldið hér á eftir. Eftir honum rennur Múlaá um Haugahóla og kemur úr Skriðuvatni. Ofan við vatnið heitir hún Öxará og kemur úr Ódáðavötnum syðst á Múlaafrétt. Vestan við Þingmúla er Norðurdalur og um hann rennur Geitdalsá. Hún sameinast Múlaá norðan við Þingmúla og heitir eftir það Grímsá. Skriðdalur ber nafn með réttu því dalbotn og hlíðar eru þakin skriðu- vængjum, grjótskriðum og fram- hlaupsurðum. Strax í Landnámu er dalurinn bendlaður við skriðuföll: „Hrafnkell hét maðr Hrafnsson; hann kom út síð landnámstíðar. Hann var enn fyrsta vetur í Breiðdal, en um várit fór hann upp um fjall. Hann áði í Skriðudal ok sofnaði; þá dreymði hann, at maðr kom at honum ok bað hann upp standa ok fara braut sem skjótast; hann vaknaði ok fór brutt. En er hann var skammt kominn, þá hljóp ofan fjallit allt og varð undir göltr og griðungr, er hann átti“. (ís- lensk fornrit I. Landnámabók, bls. 299). Landnámufrásögnin hefur verið tekin nær óbreytt upp í Brandkrossa- þátt. í Hrafnkelssögu Freysgoða er til- brigði við þessa sögu en hún er þar í mikilsverðum atriðum frábrugðin Landnámu. Þar er greint frá landnámi Hallfreðar föður Hrafnkels Freys- goða. Hann reisti bæ sem nú heitir Geitdalur í Norðurdal Skriðdals. „Ok eina nótt dreymði hann, at maðr kom at honum ok mœlti: „Par liggur þú Hallfreðr ok heldr óvarliga. Fcer þú á brott bú þitt ok vestr yfir Lagarfljót. Par er heill þín öll. “ Eptir þat vaknar hann ok fœrir bú sitt út yfir Rangá í Tungu, þar sem síðan heitir á Hallfreðarstöðum, ok bjó þar til elli. En honum varð eptir göltr ok hafr. Ok inn sama dag, sem Hallfreðr var í brott, hljóp skriða á húsin, ok týndusk þar þessir gripir, ok því heitir þar síð- an í Geitdal“. (íslensk fornrit XI. Hrafnkelssaga Freysgoða bls. 97) Skiptar skoðanir hafa verið um það hvort einhver sannleikskjarni sé að baki þessara sagna. Sigurður Nordal (1940) taldi að frásögn Hrafnkelssögu væri skáldskapur sniðin eftir texta Landnámu en honum breytt eftir hentugleikum. Hann taldi jafnframt að sögnin um Geitdal tengist skriðu- hlaupi, aurskriðu eða snjóskriðu sem greint er frá í Prestssögu Guðmundar Náttúrufræðingurinn 60 (2), bls. 81-91, 1990. 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.