Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						22  16. maí 2009  LAUGARDAGUR

UMRÆÐAN

Jón Baldvin Hannibalsson 

skrifar um Evrópumál

N

ýlega kom út bókin Inni eða 

úti? eftir Auðun Arnórsson. 

Þetta er lítil bók um mikið efni: 

Hvernig á litla Ísland að semja um 

aðild við hið stóra Evrópusamband? 

Umræðuefnið er þessi dægrin á 

hvers manns vörum. Þessi litla bók 

á því brýnt erindi við alla Íslend-

inga, sem á annað borð kæra sig 

ekki kollótta um framtíð sína og 

sinna.

Að vísu er þetta ekki eins stór 

ákvörðun og virðast mætti við 

fyrstu sýn. Við erum nefnilega 

engir nýgræðingar í Evrópusam-

starfi. Hinn 1. jan. sl. voru 15 

ár liðin frá því að Ísland gerðist 

aðili að Evrópska efnahagssvæð-

inu (EES). Eins og höfundur sýnir 

fram á, þýðir það að við erum eins 

konar aukaaðilar að ESB nú þegar. 

Í samningaviðræðunum framundan 

þurfum við því aðeins að semja um 

tiltölulega fá vandmeðfarin mála-

svið: Þau sem skipta mestu máli 

eru: Sjávarútvegur, landbúnaður 

og byggðamál, evrusamstarfið og 

kostnaður og mönnun örþjóðar í 

hinum stóru stofnunum ríkjasam-

bandsins. 

Engum dylst, sem fylgist með 

þjóðarumræðunni, að u.þ.b. þriðj-

ungur þjóðarinnar er skíthræddur 

um, að eitthvað hræðilegt muni 

koma fyrir þjóðina, stígi hún 

skrefið til fulls í Evrópusamstarf-

inu og gerist fullgild aðildarþjóð. 

Af hverju eru svona margir svona 

voðalega hræddir? 

Sumpart er þetta ofurskiljanlegt. 

Íslendingar teljast vera innan við 

0,1% af núverandi íbúafjölda Evr-

ópusambandsins. Margir finna því 

sárt til smæðar sinnar. Þeir óttast 

að týnast í mannhafinu; að verða 

áhrifalaus handbendi stærri þjóða. 

Við erum nýfrjáls þjóð ? fyrrver-

andi nýlenduþjóð. Sjálfstæðisbar-

áttan við Dani setur enn svipmót 

sitt á hugarfar og pólitíska orðræðu 

okkar. Þorskastríðin við Breta eru 

enn í fersku 

minni. Stund-

um finnst okkur 

eins og allir 

útlendingar séu 

óvinir, sem vilji 

okkur illt. Skyn-

samleg umræða, 

sem byggir á 

staðreyndum 

og yfirveguðu 

hagsmunamati, 

á erfitt uppdráttar í svona and-

rúmslofti. 

Snertur af ofsóknarkomplex

Við búum yfir lítilli reynslu í 

alþjóðasamskiptum. Sú hugsun, að 

við þurfum að tala máli okkar við 

erlenda áhrifamenn til að fá brýn-

um hagsmunamálum framgengt, 

er mörgum íslenskum stjórn-

málamönnum framandi. Margir 

þeirra virðast halda, að þeir séu 

einir í heiminum. Margir þeirra, 

sem þykjast færir í flestan sjó á 

heimavelli, reynast uppburðarlitl-

ir og umkomulausir í framandlegu 

umhverfi. Tungumálakunnátta 

Íslendinga er reyndar langt fyrir 

neðan meðaltal hjá smáþjóðum í 

Evrópu. Flestir þykjast geta bjarg-

að sér á amböguensku, sem dugar 

skammt þegar á reynir að rökræða 

flókin mál með sérhæfðu tungu-

taki. Vald á skandinavísku er að 

deyja út með yngri kynslóðinni. 

Meginlandstungumál eru flestum 

framandi. Þessi málhelti þolir lítt 

samanburð við fjöltyngi stjórn-

málamanna smáþjóða á meginlandi 

Evrópu. Það stoðar lítt að senda 

mállausa menn í samningaviðræður 

við útlenda sérfræðinga. 

Hvers vegna er svo auðvelt að 

telja Íslendingum trú um, að þjóðir 

sem starfa af fúsum og frjálsum 

vilja í fjölþjóðasamtökum, til þess 

að gæta þar gagnkvæmra hags-

muna, hafi þar með glatað sjálf-

stæði sínu og fullveldi? Hvers 

vegna í ósköpunum ættu þær rúm-

lega 20 smáþjóðir, sem af fúsum og 

frjálsum vilja hafa samið um aðild 

að Evrópusambandinu, ? hvers 

vegna ættu þær að hafa gert það til 

að farga sjálfstæði sínu? Umræða 

af þessu tagi flokkast undir ein-

hvers konar paranoju ? og þarfn-

ast sérstakrar meðferðar. 

Hvað sagði ekki Hannes Péturs-

son, sjálft þjóðskáldið, um dag-

inn? Þótt hann væri allur af vilja 

gerður að eta súrmeti í öll mál, 

var hann ekki viss um, að fram-

boðið yrði nóg, ef innflutningur á 

búvélum og tækjum og áburði og 

umbúðum legðist allt í einu af. Þá 

færi lítið fyrir fæðuörygginu. Og 

fiskveiðarnar væru varla annað en 

frá hendinni til munnsins, ef inn-

flutningur skipa, véla og veiðar-

færa legðist af. 

Ekki ein í heiminum

Við getum m.ö.o. ekki látið eins og 

við séum ein í heiminum ? okkur 

að kostnaðarlausu. Um 20 þús-

und Íslendingar hafa misst vinn-

una þessi dægrin. Allir þeir sem 

vinna við sjávarútveg og landbún-

að teljast vera til samans innan við 

11 þúsund manns. Þeim fer fækk-

andi vegna aukinnar tækni, sem 

leysir mannshöndina af hólmi. 

Þessi 20 þúsund störf, sem okkur 

vantar fyrir Íslendinga með fjöl-

breytta menntun og starfsþjálfun 

munu ekki verða til í sjávarútvegi 

og landbúnaði. Þau verða til í opnu 

þjóðfélagi, sem tekur fullan þátt í 

alþjóðasamskiptum. 

Einstaklingur, sem verður fyrir 

þeirri þungbæru reynslu að verða 

gjaldþrota, á ekki annarra kosta 

völ en að freista samninga við lán-

ardrottna sína. Við þurfum með 

sama hætti að semja um greiðslu-

kjör skulda, lánalengingu og lækk-

un vaxta. Þjóð sem hefur fyrirgert 

lánstrausti sínu, býr við refsivexti. 

Einungis um 3% lækkun vaxta 

á erlendum skuldum fyrirtækja, 

heimila og ríkisins getur lækk-

að greiðslubyrði þjóðarbúsins um 

meira en tvö hundruð milljarða. Við 

þurfum að semja um afnot af not-

hæfum gjaldmiðli, af því að okkar 

eigin er rúinn trausti. Við þurf-

um að semja um endurfjármögn-

un skulda og aðgang að lánsfé. Það 

er sama hvert litið er. Við þurfum 

að semja við aðra, lánardrottna, 

Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðild-

arþjóðir Evrópusambandsins og 

Evrópusambandið sjálft til þess að 

finna lausn á bráðavanda ? neyðar-

ástandi ? sem við ráðum ekki við að 

leysa ein á báti.

Við vitum m.ö.o. að aðild að Evr-

ópusambandinu og upptaka evru 

mundi hjálpa til við að leysa mörg 

af okkar brýnustu vandamálum. Við 

vitum líka, að til þess að það geti 

orðið verðum við að leita samninga 

sem taka nokkur ár. Einmitt þess 

vegna er óráðlegt að slá ákvörðun-

inni á frest, því að samningar við 

Evrópusambandið snúast ekki bara 

um frambúðarlausn einhvern tíma í 

fjarlægri framtíð ? heldur líka um 

lausnir á þeim bráðavanda, sem 

við verðum að leysa nú þegar með 

samningum. 

En þótt raunsæið beini okkur á 

þessa braut, þá glymur hræðslu-

áróðurinn sífell í eyrum til að æra 

og villa villugjarna af vegi. Þeir 

munu stela auðlindunum okkar, er 

sagt. Útlendir flotar munu flykkj-

ast á Íslandsmið, landbúnaðurinn 

verður lagður í rúst, við verðum 

látin borga meðlög með fátækum 

þjóðum í Austur- og Suður-Evrópu 

(miklu meira en við fáum í staðinn). 

Við getum ekki lengur gengisfellt 

krónuna til þess að lækka launin, 

ef afli bregst eða verð á fiski fellur 

í útlöndum. Og við, sem erum svo 

fá og smá, munum engin áhrif hafa 

í málstofum miðstjórnarvaldsins í 

Brüssel. Við verðum eins og hverjir 

aðrir niðursetningar á stórbýlum 

lénsherranna til forna. 

Samningsmarkmið

Bók Auðuns er skrifuð til þess að 

svara hræðsluáróðri af þessu tagi. 

Í staðinn fyrir upphrópanir og 

sleggjudóma eru bornar fram stað-

reyndir og upplýsingar um reynslu 

annarra þjóða, sem á undan förnum 

árum hafa farið í gegnum samn-

ingaferli við Evrópu sambandið. 

Það er satt að segja undrunarefni, 

að á þessum hálfa öðrum áratug, 

sem pólitíska forystan á Íslandi 

hefur verið að velta því fyrir sér, 

hvort hún treysti sér til að semja 

við Evrópusambandið, þá hefur 

enginn, hvorki stjórnvöld né fræði-

menn, myndast við að skilgreina 

þau samningsmarkmið, sem Íslend-

ingar ættu að setja sér í aðildarvið-

ræðum. Ráðuneyti gera náttúrlega 

ekki slíkt, nema þeim sé sagt það. 

Og stjórnmálamönnunum hefur 

yfirleitt staðið svo mikill stuggur af 

hræðslu áróðri sérhagsmunahópa, 

að þeir hafa ekki þorað að taka á 

málinu. Nú hefur höfundur þessarar 

bókar tekið af þeim ómakið. Hann 

setur fram í skýru og skilmerki-

legu máli, í hverjum kaflanum á 

fætur öðrum, hver samningsstaða 

Íslands er og hver samningsmark-

miðin ættu að vera. 

Í sjávarútvegsmálum er samn-

ingsmarkmiðið að íslenska fisk-

veiðilögsagan, sem er algerlega 

aðskilin frá hinni sameiginlegu 

lögsögu bandalagsins, verði viður-

kennd sem sérstakt fiskveiðistjórn-

unarsvæði á íslensku forræði. Þetta 

styðst jafnt við fordæmi annarra 

og veigamikil rök, sem byggja á 

sérstöðu Íslands. Nytjastofnar á 

Íslandsmiðum eru allir staðbundn-

ir. Engin önnur Evrópusambands-

þjóð á sögulegan rétt til veiða á 

Íslandsmiðum. Með þessari lausn 

er því ekkert frá öðrum tekið, sem 

þeir hafa átt, né heldur er neins 

krafist af öðrum, sem þeir þurfa 

að gefa eftir. Það eru gagnkvæmir 

hagsmunir að fiskveiðar á Íslands-

miðum verði sjálfbærar.

Að því er varðar rétt útlendinga 

til að fjárfesta í íslenskum sjávar-

útvegsfyrirtækjum, er hægt að 

vísa til sérreglna, eins og þeirra 

sem gilda fyrir Álandseyjar um 

?takmörkun á rétti þeirra, sem ekki 

eiga lögheimili í viðkomandi landi 

á að eignast ráðandi hlut í fyrir-

tækjum sem þar starfa, án þess að 

slíkar takmarkanir teljist brjóta í 

bága við jafnræðisregluna?. Íslend-

ingar verða sjálfir að gera það upp 

við sig, hvort sérlausn af þessu tagi 

telst eftirsóknarverð. 

Margir eru þeirrar skoðunar, 

þ.á m. undirritaður, að eina leiðin 

til þess að létta óbærilegri skulda-

byrði af sjávarútvegsfyrirtækj-

unum sé sú að leyfa þeim, eins og 

öðrum fyrirtækjum, að leita eftir 

erlendu hlutafé. Fyrst sögulegur 

réttur til veiða er enginn og verði 

ráðandi hlutur útlendinga í fyrir-

tækjunum takmarkaður, þarf ekki 

að hafa þungar áhyggjur af svo-

nefndu ?kvótahoppi?, sem gætt 

hefur í veiðum úr sameiginlegum 

fiskistofnum og á sameiginlegum 

hafsvæðum eins og t.d. á Norðursjó, 

en mundi ekki eiga við á Íslands-

miðum. 

Það má merkilegt heita, að tals-

menn kvótahafanna í LÍÚ eru svo 

uppteknir af því að varðveita illa 

fengin forréttindi sín til einokun-

ar á fiskveiðiheimildunum, að þeir 

sjá óvini í hverju horni, en gleyma 

því gersamlega, að gengi Ísland í 

ESB yrðum við ?fiskveiðistórveldi? 

innan sambandsins. Í svokallaðri 

grænbók framkvæmdastjórnar 

ESB um fyrirhugaða endurskoðun 

SFS (sameiginlegu fiskveiðistefn-

unnar), sem birt var í lok apríl 

2009 er ýmislegt haft til hliðsjón-

ar úr íslenska fiskveiðikerfinu (sjá 

bls. 56?62). Í framhaldi af þeirri 

umfjöllun segir Auðunn:

?Eðlilegt samningsmarkmið 

Íslendinga væri að fá vilyrði fyrir 

því, að íslenski fulltrúinn í fram-

kvæmdastjórninni yrði settur yfir 

sjávarútvegsmálin. Norðmenn 

fengu slíkt vilyrði, þegar þeir gerðu 

sinn aðildarsamning árið 1994.?

Byggðastefna í anda framsóknar

Landbúnaði, byggðamálum og sveit-

arstjórnarmálum eru gerð prýðileg 

skil í bók Auðuns, þótt ekki verði 

orðlengt um það í þessari umsögn. 

Svo vel þykist ég þekkja til íhygli 

og sjálfstæðrar skoðanamyndun-

ar einstaklinga í bændastétt, að 

margir þeirra munu hugsa sig um 

tvisvar að loknum lestri, áður en 

þeir trúa sem nýju neti hræðslu-

áróðri bændaforystunnar um enda-

lok landbúnaðar og landsbyggðar. 

Íslenskir bændur vita, að ytri skil-

yrði landbúnaðar á Íslandi mun 

gerbreytast, hvort sem við göng-

um í ESB eða ekki, þegar niðurstöð-

ur fást í yfirstandandi viðræður á 

vegum Alþjóðaviðskiptastofnun-

arinnar (WTO) um aukið frelsi í 

milliríkjaviðskiptum með land-

búnaðarvörur. Spurningin er, 

hvort íslenskir bændur yrðu ekki 

betur undir það búnir, eins og t.d. 

sænskir bændur, að takast á við 

þær breytingar, innan ESB frem-

ur en utan? 

Að því er varðar byggðamálin 

segir höfundur eftirfarandi: 

?Eðlilegt samningsmarkmið 

Íslands væri að fá allt landið, vegna 

einangrunar í úthafinu, strjálbýlis 

og óblíðrar náttúru, skilgreint inn 

í ?markmið 1? í uppbyggingar- og 

byggðastyrkjakerfinu. Það gæti 

haft mikið að segja um það, hversu 

mikið íslenskir aðilar (sveitarfélög 

og fleiri aðilar sem sótt geta um 

uppbyggingar- og byggðaþróunar-

styrki) gætu fengið greitt úr sam-

eiginlegum sjóðum ESB og þar með 

hver nettóaðildariðgjöld Íslands að 

sambandinu yrðu.?

Í upphafi var þess getið, að 

Íslendingar teldust vera innan við 

1% af samanlögðum íbúafjölda 

Evrópusambandsins. Það er því 

eðlilegt, að menn beri nokkurn 

kvíðboga fyrir áhrifaleysi í stofn-

unum sambandsins. Um þetta er 

ágæt umfjöllun í bókinni. Á það 

er bent, að ekki er allt sem sýnist í 

þessu efni. Leitun mun vera á fjöl-

þjóðasamtökum, þar sem smáþjóðir 

hafa jafnmikil áhrif og innan ESB, 

enda er meirihluti aðildarþjóða 

smáþjóðir skv. skilgreiningu. Við 

mættum gjarnan hugsa til þess, að 

ef að líkum lætur, þá yrðu um 64000 

íbúar að baki hverjum íslenskum 

Evrópuþingmanni á móti 800.000 

að baki hverjum þýskum þing-

manni. Erum við ekki að bölsótast 

yfir misvægi atkvæða, sem mælist 

1 á móti 2? Eru Þjóðverjar svona 

miklu fúsari en við til að afsala sér 

?fullveldi? í samstarfi við aðra?

Aðferðarfræði Evrópusambands-

ins er að leysa ágreiningsmál, sem 

upp koma milli aðildarþjóða með 

samningum, á grundvelli laga og 

réttar. Smáþjóðir einbeita sér eðli 

málsins samkvæmt að fáum lykil-

málum, sem varða brýna þjóðar-

hagsmuni, og reyna að ná þeim 

fram í bandalagi við aðrar þjóðir, 

sem eiga svipaðra hagsmuna að 

gæta. Íslendingar myndu skipa 

sér í sveit með Norðurlanda- og 

Eystrasaltsþjóðum í svæðis-

bundnu samstarfi innan ESB. Við 

höfum góða reynslu af margra ára-

tuga samstarfi Norðurlandaþjóða 

og þurfum ekki að óttast ofríki af 

þeirra hálfu. Sem fiskveiðistór-

veldi mundi Ísland eðlilega gera 

kröfu til þess að fá í sinn hlut fram-

kvæmdastjórann yfir fiskveiðimál-

efnum, eins og fyrr var tíundað og 

rökstutt. Á því leikur enginn vafi, 

að í sjávarútvegs- og orkumálum 

yrðu áhrif Íslands meiri og aðstaða 

til að koma fram hagsmunamálum 

sínum betri, innan ESB en utan. 

Þetta er eins og fyrr sagði lítil 

bók um mikið efni. Hún getur 

þénað íslenskum fyrirtækjum og 

heimilum sem handbók um samn-

ingstöðu og samningsmarkmið 

Íslands í væntanlegum aðildar-

samningnum. Greining höfundar 

á vandamálum og lausnum, sem og 

frásögn af reynslu annarra þjóða, 

ætti að vera til þess fallin að eyða 

fordómum og styrkja forsendur 

málefnalegrar umræðu um brýn-

ustu hagsmunamál þjóðarinnar í 

náinni framtíð. 

Höfundur leiddi fyrir Íslands 

hönd samningana við Evrópusam-

bandið um Evrópska efnahags-

svæðið (EES) á árunum 1989-93. 

Samningsstaða og samningsmarkmið

Engin önnur Evrópusambandsþjóð á sögulegan rétt til veiða á 

Íslandsmiðum. Með þessari lausn er því ekkert frá öðrum tekið, 

sem þeir hafa átt, né heldur er neins krafist af öðrum, sem þeir 

þurfa að gefa eftir.

JÓN BALDVIN 

HANNIBALSSON

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96