menning [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] maí 2009 VERK EFTIR HULDU HÁK ON Þrjár óperur fluttar á réttri viku Hið rómantíska æði er frekt á íslenskum óperusviðum: Heinesen, Hel Sigurðar Nor- dal og hinn bráði trúður Verdis, Rigoletto. SÍÐA 4 Þ að er sól og bjart á Akureyri þegar Hulda er að koma verk- um sýnum fyrir í vistarverum Listasafnsins í Gilinu. Hulda segir verkin vera á milli sextíu og sjötíu og það hafi komið sér þægilega á óvart: ?Ég komst að því hvað ég á mörg verk sjálf svo ég á einhverja sjóði sem geta dugað mér fram á efri ár, Mörg þeirra hafa ekki sést áður hér á landi,? segir hún. ?Hér er þó ýmislegt sem ekki hefur ratað saman á vegg, til dæmis eru hér allir fótboltamennirnir mínir, 22. Þeir hafa aldrei áður komið saman á vegg.? Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík ? og víðar um land. Samfara henni kemur út mikilvæg sýningarskrá sem bætist við fyrri bókverk um feril Huldu. Hannes Sigurðsson segir þar: ?Allt frá upphafi ferils síns hefur Hulda Hákon (f. 1956) haft auga fyrir því að varpa einkennilegum hetjuljóma á hvers- dagslífið. Verk hennar eru bautasteinar um litla sigra, óhöpp eða bara forvitni- leg atvik sem hún varðveitir í uppstill- ingum, myndum og texta, og minnir á að þau eru alveg jafn merkileg og þau viðfangsefni sem oftast eru uppspretta opinberra skúlptúra.? Megintexti bók- arinnar er eftir Auði Jónsdóttur rithöf- und sem lagði sig fram við að kynna sér verkin og manneskjuna á bak við þau. þar eru dregnir saman helstu textar um Huldu eftir innlenda og erlenda fræði- menn. Og hvernig líkar henni dvölin nyrðra í sólinni og svalanum? ?Það er svo mis- munandi andi í þorpum og smábæjum, Eyjar og Akureyri gætu verið í sitthvoru landinu.? Listasafnið er opið alla daga frá kl. 12-17 og er aðgangur ókeypis en hún varir til 28. júní. . TVEIR MENN, KONA OG SÆSKRÍMSLI Í dag opnar Hulda Hákon stórsýningu á verkum sínum í Listasafni Akureyrar: ?Þetta er ekki yfi rlitssýning, hér vantar fjölda verka úr einkaeign og frá útlend- um söfnum,? segir Hulda, ?en verkin eru frá öllum ferli mínum, það elsta frá 1982 og það yngsta fárra vikna.? MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON Myndlistarsýningar Kristján Guðmundsson sýnir á Listahátíðar sýningu Listasafns Íslands ásamt Hrafnkatli Sigurðssyni. SÍÐA 6