Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						40  16. maí 2009  LAUGARDAGUR

LEIKUR TVEIMUR SKJÖLDUM 

Í EUROVISION-ÁHUGA

?Diggi-Loo Diggi-Ley (sigurlag 

hinna sænsku Herryes árið 1984) 

er eina Eurovision-lagið sem kemur 

upp í hugann. Hlýtur það þá ekki 

að vera uppáhaldslagið mitt?? hlær 

Helga Vala Helgadóttir, formaður 

Reykjavíkurfélags Samfylkingar-

innar, þegar hún er innt eftir því 

hvenær Söngvakeppni evrópskra 

sjónvarpsstöðva hafi náð hæstum 

hæðum. 

Helga dregur þó fljótlega í land 

með slíkar yfirlýsingar. ?Gagnvart 

börnunum mínum er ég auðvitað 

einlægur aðdáandi keppninnar. En ef ég væri ein með sjálfri 

mér býst ég fastlega við að ég myndi sofa herlegheitin af mér. 

Ég varð þó fyrir miklu áfalli þegar ég, ásamt dóttur minni, 

var stödd úti í Bretlandi árið 2000 og við gátum ómögulega 

fundið sjónvarpsstöð sem sýndi frá keppninni. Þá rann upp 

fyrir mér að líklega horfa fáir nema við Íslendingar.?

Helga spáir Jóhönnu Guðrúnu og fylgdarliði sjöunda sæti í 

Moskvu í kvöld. ?Ég veit samt ekki hvort lagið lendir í sjöunda 

sæti ofan frá eða neðan frá. En ég tel fullvíst að það verði 

annað hvort,? segir Helga Vala Helgadóttir.

Uppáhalds 

Eurovisionlögin

Vafalaust verður þorri landsmanna límdur við sjónvarpsskjá-

inn þegar Jóhanna Guðrún og fylgdarlið hennar stíga á sviðið 

í Olimpiysky-höllinni í Moskvu í kvöld. Kjartan Guðmunds-

son náði tali af nokkrum valinkunnum andans mönnum og 

konum og spurði þau um eftirlætislögin sem Söngvakeppni 

evrópskra sjónvarpsstöðva hefur alið af sér.

BESTA LAGIÐ HEFUR SÖGULEGA SKÍRSKOTUN

MÁTULEGT Á ÍSLAND AÐ VINNA

?Þessi keppni er rusl og hefur 

ekkert með tónlist að gera. Ég 

hreifst með í Gleðibankaævintýr-

inu sem barn en síðan hef ég lítið 

fylgst með þessu. Enda er keppnin 

ekki innan míns áhugasviðs, sem 

er tónlist,? segir Kristinn Gunnar 

Blöndal, einnig þekktur sem KGB, 

tónlistarmaður.

Kristinn viðurkennir þó að 

örfá fín lög hafi farið í gegnum 

keppnina á þeim áratugum sem 

Eurovision hefur verið haldin. 

?Einu lögin sem koma upp í hug-

ann eru All Kinds of Everything með Dönu (sigurlag Íra árið 

1970) og Waterloo (sem færði Svíum sigurinn árið 1974). En 

þá skilst mér reyndar að keppnin hafi haft eitthvert vægi.?

Þrátt fyrir almenna andúð á Eurovision kom Jóhanna Guð-

rún Kristni þó skemmtilega á óvart. ?Lagið sem hún syngur er 

tilfinningavella með skólabókarhljómagangi en Jóhanna er, 

mér til mikillar undrunar, frábær söngkona. Rétt skal vera rétt. 

Enda hefur hún verið þjálfuð á kínverska vísu frá barnsaldri. 

Það væri mátulegt á þjóðarplebbismann að sigra í keppninni 

og sitja uppi með enn eitt víkingatengt skuldaævintýrið,? segir 

Kristinn Gunnar Blöndal.

SLÆR VOPNIN ÚR HÖNDUM KALDHÆÐNILIÐSINS

ALLTAF HALDIÐ MEÐ DÖNUM

Bjarni Felixson, íþróttafrétta-

maður, segist hafa fylgst með 

Eurovision-keppninni með öðru 

auganu í gegnum tíðina. ?Oft hef 

ég haft gaman af þessari keppni. 

En mér finnst sérstaklega skemmti-

legt að fylgjast með stigagjöfinni. 

Ég er ekki frá því að ég nálgist þetta 

dálítið eins og íþróttakappleik.?

Spurður um uppáhalds Euro-

vision-lagið er Bjarni ekki í nokkr-

um vafa. ?Ég hef oftast verið hrifinn 

af framlagi Dana í keppnina og var 

mjög kátur þegar Olsen-bræðurnir 

sungu lagið Fly on the Wings of Love til sigurs árið 2000. Eins 

fannst mér hitt sigurlag Danmerkur mjög gott (Dansevise, sem 

Grethe og Jørgen Ingmann fluttu árið 1963). Ég er orðinn svo 

gamall að flest eftirlætislögin mín eru að verða hálfrar aldar 

gömul. Þessi nýrri tónlist höfðar ekki eins mikið til mín.?

Bjarni segir Íslendinga hafa að jafnaði staðið sig vel í Euro-

vision, og hann er ánægður með framlagið í ár. ?Ég treysti mér 

þó ekki til að spá fyrir um úrslitin. Það er jafnvel erfiðara að 

spá fyrir Eurovision en knattspyrnu,? segir Bjarni og hlær.

LANGT FRÁ ÞVÍ AÐ VERA MÍN DEILD

?Eurovision er mjög langt frá því að 

vera mín deild hvað tónlist varðar. 

Mér þótti þetta óhemjuleiðinlegt á 

tímabili, en núna finnst mér þetta 

aðeins meira gaman,? segir pönk-

drottningin og fyrrverandi X-Factor 

dómarinn Elínborg Halldórsdóttir, 

sem einnig er þekkt undir nafninu 

Ellý í Q4U. 

?Ég á ekkert eftirlætis Eurovision-

lag, en ég á skemmtilegar bernsku-

minningar tengdar laginu All Kinds 

of Everything með Dönu. Það lag 

söng ég á skólaskemmtunum og 

í afmælum þegar ég var lítil stelpa og kunni fram og til baka. 

Mér þykir því dálítið vænt um það lag,? segir Ellý.

Ellý óttast að óvinsældir Íslands vegna vangoldinna skulda 

á alþjóðavettvangi geti komið niður á íslensku keppendunum 

í stigagjöfinni í kvöld. ?Það er samt aldrei að vita hvað gerist. 

Keppnin er orðin dálítið öfgafull, með rosa dönsum og 

trommum og öllu tilheyrandi, en mér finnst Ísland og Noregur 

vera að fara í aðra átt en flestir hinna. Jóhanna Guðrún er auð-

vitað frábær og það sást strax á unga aldri hjá henni að hún 

myndi ná langt. Svo er norski keppandinn svo rosalega sætur 

og flottur,? segir Elínborg Halldórsdóttir.

?Í dag er ég með lagið Save Your Kisses for Me 

með Brotherhood of Man (sigurlag Breta í Eurov-

ision árið 1976) á heilanum. Vinkona mín var að 

að raula það í vikunni og svo sá ég það í einhverj-

um Eurovision-þætti í sjónvarpinu fyrir nokkrum 

vikum. Þetta er bara svo ógeðslega sætt lag, vel 

heppnað popplag sem festist í höfðinu,? segir 

Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur, þegar 

hún er beðin um að nefna eftirlætis Eurovision-

lagið sitt.

Guðrún bauð gestum heim til sín að fylgjast 

með frækilegri frammistöðu Jóhönnu Guðrúnar 

í undankeppninni síðastliðinn þriðjudag. Hún 

stefnir á að endurtaka leikinn í kvöld. ?Síðast eld-

aði ég rækjur en núna hef ég hugsað mér að elda gúllas. Hann 

Gunni vinur minn verður afar spenntur og tilfinninga-

samur yfir keppninni og það hjálpar okkur hinum að 

lifa okkur inn í þetta. Við þurfum nefnilega alveg á 

smá hjálp að halda með það.?

Guðrún spáir því að íslenska lagið nái 10. sæti í 

Moskvu í kvöld. ?Ég hugsa að allir ættu að geta verið 

ánægðir með það. Hún Jóhanna Guðrún er svo falleg 

og yndisleg að það er ekki hægt annað en að halda 

með henni. Hún slær 

vopnin úr höndun-

um á kaldhæðni-

liðinu með því að 

vera svona opin 

og einlæg,? segir 

Guðrún Eva Mínervudóttir.

?Uppáhalds Eurovision-lagið mitt hefur mikla 

sögulega skírskotun, enda fyrsta og eina lagið sem 

sungið hefur verið á arabísku í keppninni þar til 

nú,? segir Stefán Pálsson, sem er sagnfræðingur 

eins og Eurovision-smekkurinn gefur sterklega til 

kynna. Framlag Ísraels til keppninnar í ár er sungið 

á hebresku, arabísku og ensku. 

?Þannig er mál með vexti að það eru ekki ein-

ungis Evrópulönd sem mega keppa í Eurovision, 

heldur öll þau lönd sem eru meðlimir í Sambandi 

evrópskra sjónvarpsstöðva, sem inniheldur nánast 

öll ríki við Miðjarðarhafið. Þar á meðal er Marokkó 

sem tók þátt í fyrsta og hingað til eina sinn árið 

1980 með laginu Bitaqat Khub,? segir Stefán.

?Þetta var í raun Gleðibanki þeirra Marokkómanna. Þeir 

sendu skærustu söngstjörnu landsins í keppnina og bundu gríð-

arlegar vonir við lagið. Þær vonir brugðust, og Marokkóbúarnir 

fundu þann sársauka sem við Íslendingar þekkjum allt of vel. 

Lagið lenti í næstsíðasta sæti, rétt á undan Finnum. 

Þetta urðu mikil og djúpstæð vonbrigði, og sagan 

segir að konungurinn Hassan II hafi orðið svo fúll 

að hann hafi fyrirskipað að Marokkó tæki ekki aftur 

þátt í keppninni. Marokkó hefur ekki tekið þátt aftur, 

líka vegna þess að landið vill ekki taka þátt í sömu 

keppni og Ísrael.?

Stefán segist hafa haft áhuga á Eurovision á sínum 

yngri árum, þegar Ísland var að stíga sín fyrstu spor í 

keppninni. ?Manni fannst rökrétt að fyrst Íslendingar 

ættu heimsmeistara í aflraunum og fegurð ættum 

við heimtingu á Evrópumeistaratitli í sönglist, en 

okkur var svo kippt niður á jörðina í þeim efnum. 

Hin síðari ár hefur þessi ástríða á keppninni, sem 

jaðrar við þráhyggju, farið að skelfa mig. Þegar sú ákvörðun 

var tekin að láta alla innlenda dagskrárgerð RÚV hverfast um 

undankeppnina í fyrra, mettaðist áhuginn endanlega,? segir 

Stefán Pálsson.

ÞEKKTASTA EUROVISION-SIGURSVEITIN Hin sænska poppsveit Abba vann Eurovision árið 1974 með laginu Waterloo sem skaut sveitinni upp á 

poppstjörnuhimininn þar sem hún fékk fastan samastað. 

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96