SAMVINNAN 7 séu hollar og hentugar fyrir þá, sem í þeim búa, hlýar og varanlegar. Á öllum þessum sviðum koma fram margskon- ar fyrirmyndir. þær álitlegustu þurfa að vera sem flestum kunnar, og verða til fyrirmyndar öðrum, sem síðar byggja. Á þennan hátt er reynsla allrar þjóðarinnar tekin til að leysa úr vanda byggingarmálanna. Hver sem hefir eitt- hvað að bjóða, sem sýnist vera umbót eða geta leitt til umbótar á að fá tækifæri til að láta sitt ljós skína í þessu tímariti. Við erum skamt á veg komnir með byggingar, en ef til vill enn skemra með húsgögn og híbýlaprýði. I sveitun- um eru víða sumpart engin húsgögn nema lítt vönduð rúm- stæði, samanrekið matborð og koffort til að sitja á. Og þó er þetta ekki það versta. Fátæktin hefir valdið mestu um útlit snauðu heimilanna. En sumstaðar hefir miklu fé verið varið í ósmekkleg húsgögn. Enn vantar alveg ís- lenskan stíl í húsbúnað manna, stíl, sem væri mótaður af eðli landsins, híbýlum og atvinnuháttum í kauptún- um og til sveita. Sömu aðferð má beita hér. Leita eftir því besta sem hér hefir verið hugsað og gert í þessu efni, og láta mynd- ir og lýsingar tala, eftir því sem á við um aðra hí- býlaprýði og skraut, til dæmis með myndum sem veggir eru skreyttir með. Sú list er nokkuð ný hér og þess eru mörg dæmi, að menn sem hafa vel vit á góðum skáldskap bera lítið skyn á myndir og fegurð þá sem í þeim býr. Til ber það á myndarlegum heímilum hér á landi, að á veggjunum hanga nauða-ómerkilegar auglýs- ingamyndir, eða útlendir þjóðhöfðingjar, sem ekkert eiga skylt við hugsanalíf manna hér á landi. Tilviljunin og lítt þroskaður smekkur valda því að ómyndir þessar óprýða veggina. Ef því verður við komið mun Samvinnan telja sér skylt að sinna líka þessari hlið. þyrfti þar helst það tvent að fara saman að í ritinu kæmu smámyndir af viðurkendum listaverkum og að ódýrar en stærri myndir af þeim fengjust nógu víða á landinu, t. d. í öllum kaup- félögum fyrir utan búðir þær sem áður versla með slíka