SAMVINNAN 9 spilla áliti á fjárhag félaganna. Verkefni næstu ára sýn- ist að miklu leyti hljóta að vera fólgin í því, að rækta þann garð sem nú er búið með miklum erfiðismunum að girða og friða. Hugsjón Hallgríms Kristinssonar um al- hliða framför þjóðarinnar, þar sem efnaleg umbót er fyrst og fremst metin vegna andlegra umbóta, sem af henni leiða, á enn langt í land að vera viðurkend. En þeir sem trúa á endanlegan sigur þeirrar hugsjónar, geta yel sætt sig við að þokast nær því takmarki, þótt mörg skref- in séu stutt.