Heima og* erlendis. Svo heitir skrifað blað sem Kaupfélag Ófeigur. þingeyinga hefir gefið út í nálega manns- aldur. Benedikt Jónsson á Auðnum er og hefir verið ritstjóri þess og skrifað manna mest í blaðið. Munu nú vera gefin út yfir 20 samrit af Ófeigi", eitt í hverja deild og gengur heftið milli allra í deildinni og síðan geymt hjá deildarstjóra. Benedikt Jónsson hefir verið kallaður bestur skrifari hér á landi, fyrir utan aðra yfirburði. Ritar hann sjálfur fyrsta eintakið og stundum meira, en síðan taka við aðrir vel skriftlærðir menn, að prenta. Útgáfa Ófeigs" er alveg einstök í sinni röð. Blað- ið ræðir öll kaupfélagsmál, sem fyrir koma í héraði og veita félagsmönnum margskonar fræðslu um verslunar- og félagsmál. Margir félagsmenn skrifa í blaðið. Og til að rita það og endurrita fyrir enga eða nálega enga borg- un, þarf mikinn óeigingjarnan áhuga. Ófeigur" er veru- leg fyrirmynd. Slí'kt blað þyrfti aðvera í hverju sam- vinnufélagi. En víða er ekki hægt að halda við rituðu blaði, af möngum ástæðum. I einu af yngstu kaupfélög- unum hefir sama hugmynd komið fram en í nokkuð öðr- um búningi. Guðbrandur Magnússon gefur út lítið vélrit- að og fjölritað blað, sem heitir'Augnablikið. 1 því koma stuttar greinar og tilkynningar. Augnablikið" kemur á flesta bæi á félagssvæðinu, en rúmar miklu minna af rit- gerðum en Ófeigur". pessara dæma er hér getið til fyrir- myndar. Hvert gott félag þarf að hafa sitt blað. Sum- staðar kynni að vera hægt að líkja eftir Ófeigi". Annar- staðar eftir Augnablikinu". peir sem kynnu að hafa