SAMVINNAN 19 landi verði í framtíðinni með eitthvað öðrum blæ í snjóa- héruðunum heldur en þar sem meira rignir. Hús á íslandi hljóta að verða dýr, ef þau eiga að vera sæmilegir mannabústaðir. Hvert hús þarf að vera svo vel bygt, að það endist öldum saman, og að margar kynslóðir geti notið sama hússins. En það sem lengi á að standa þarf vel að vanda. Hingað til hafa hús okkar úr torfi og grjóti, og síðar úr timbri, verið ákaflega ending- arlítil. Hver kynslóð hefir orðið að byggja yfir sig. þetta er gífurleg eyðsla á þjóðarauðnum, þó að ekki yrði við gert fyr á öidum. þá vantaði hér varanlegt byggingar- efni og að nokkru leyti þekkingu á því, hversu best mátti l'ara með þetta efni. Nú er að byrja ný öld i byggingum á Islandi. Öld varanlegra bygginga. Nú er búið að byggja, nú er verið að byggja og nú verður haldið áfram að byggja mikið af húsum sem standa lengi. þetta er að vísu gott, en þó at- hugunarvert. Við erum byrjendur í byggingarlistinni. Okkur vantar reynslu og vandinn er mikill að byggja hér á landi. Húsin geta hæglega orðið ljót og óhentuð til íbúð- ar, einkum er til lengdar líður og eftirkomendurnir géra meiri kröfur til þæginda og verksparnaðar, heldur en gert hefir verið hér á landi. pessvegna þarf einmitt nú að sameina allan þann áhuga, alla þá þekkingu, reynslu og framsýni nútíma- manna á Islandi um það, hversu byggingum verður best við komið. Misstignu sporin eru dýr, þegar um er að ræða steinbyggingar. Eg vil nefna nokkur þau atriði sem mestu skifta við byggingu varanlegra húsa: 1. Að byggingin sé eins ódýr og auðið er, jafnhliða því að hún uppfylli aðrar æskilegar kröfur. 2. Að hún sé varanleg og svo vel gerð, að hún geti með litlum viðgerðum verið heimili margra kynslóða. 3. Að hún sé holl, þannig að hún efli og auki heil- brigði þeirra, sem þar búa. 4. Að hún sé þægileg til afnota, og eftir því sem unt 2*