Ódýru bílferðirnar. Hér verður sögð lítil saga úr framþróun samgagn- anna hér á landi. Zófónías Baldvinsson í Reykjavík hefir átt veruleg- an þátt í að koma á hinum hröðu og ódýru ferðum, sem bændur á Suðurlandi nota nú sér til hinna mestu hagsbóta. Eftir því sem vegakerfi landsins batnar geta fleiri héruð Dotað samskonar flutningatæki. ísland hefir lakastar sam- göngur af öllum menningarlöndum Evrópu. Veldur því stærð landsins og fámennið. Alt sem bætir úr samgöngum hér, alt sem þokar mönnum saman í félagslegum skilningi, er til eflingar þjóðinni. Zófónías er Eyfirðingur, fæddur á Bakka í Svarfað- ardal 1876. Hann ólst upp þar í sveitinni, og bjó í Svarf- ardal nokkur ár, en flutti til Akureyrar laust eftir alda- mótin og gerðist þar ökumaður og ekki í smáum stíl. Hann nafði marga hesta og vagna. Keypti einskonar skraut- vagn fyrir 6 menn, sem tveim hestum var beitt fyrir, óg var hann mikið notaður á Akureyri áður en bifreiðar komu. Á veturnar hafði Zófónías marga sleða í förum, suma til vöruflutninga, en aðra sérstaklega ætlaða til mannflutninga líkt og gerist í Noregi. Samhliða þessari starfsemi ræktaði Zófónías stærðartún í nánd við Akur- eyri. Hann hafði geysimikinn áburð og ræktaði jörðina svo vel, að hann fekk oft 90 hesta af þrem dagsláttum. Jakob prestur í Holti undir Eyjafjöllum fekk Jón Sig- mundsson til að flytja hingað hina fyrstu bifreið, sem gagn var að 1913. Zófónías var einn hinn fyrsti sem skildi fljótt, hve þýðingarmikið spor var hér stigið. Árið eftir fær