48 SAMVINNAN laginu og byrjar aftur upp á eigin spítur. Um þær mund- ir hafði maður í Hafnarfirði látíð gera hinn fyrsta kassa- bíl", þ. e. bíl með föstu tréskýli yfir, mörgum litlum gler- gluggum og föstum sætum. Gátu miklu fleiri menn setið í þessum bifreiðum, heldur en hinum útlendu. Jafnhliða lækkaði taxtinn milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar um 2/3. hluta. Eftir nýár 1923 lætur Zófónías byggja tvo kassabíla til austurferða. Framsóknarmenn höfðu þá kom- ið gegnum þingið dálítilli fjárveitingu til að gera fólks- flutning ódýrari austur í sveitir. Zófónías sótti um styrk þennan, og fékk af honum 2000 kr. hjá Kl. Jónssyni ráð- herra. Líklega hefir jafnlítill styrkur sjaldan eða aldrei hér á landi valdið eins miklum sparnaði í samgöngumál- um eins og þessar 2000 kr. Zófónías setti taxtann fyrir sætið í kassabíl austur að Garðsauka 11 kr. og aðrar skemmri vegalengdir eftir því. Hélt hann uppi það sum- ar og fram á haust áætlunarferðum með bílum þessum bæði austur i Rangárvallasýslu og upp á Skeið, inn í hjarta Árnessýslu. Um sama leyti var Stefán Diðriksson kaup- stjóri á Minniborg tekinn að flytja fólk úr Biskupstung- um, Grímsnesi og Laugardal fyrir jafnlágt gjald og Zó- fónías milli Reykjavíkur og þessara héraða. Ekki var laust við að þessi nýbreytni vekti litla óánægju hjá sum- um öðrum bílaeigendum. Einn slíkur maður sagði við mig vorið 1923, að hann áliti það óðs manns æði að fara með yfirbygða bíla austur yfir Hellisheiði og niður Kamba. Sá maður hefir þó síðar snúist frá þessari skoðun, og fylgt fordæmi Zófóníasar, án þess að til skaða hafi orðið. J>essi nýbreytni Zófóníasar um mannflutninga í yf- irbygðum bifreiðum eftir austurvegum hefir haft geysi- mikil áhrif. Fargjöldin lækkuðu svo stórkostlega alt í einu, að slíks eru engin önnur dæmi í samgöngusögu Is- iendinga. Nálega allir sveitamenn notuðu þessa bíla bæði til kaupstaðarferða og til að flytja og sækja kaupafólk. Aðrir bifreiðaeigendur sáu að ekki var til nokkurs að ætla að keppa við yfirbygðu bílana með venjulegum bíl- tim, nema að því er snerti ferðalög efnamanna. Komu því