SAMVINNAN 49 fljótlega fleiri yfirbygðir bílar til sögunnar. Jafnhliða lækkuðu fargjöldin meo hinum gömlu fólksbílum smátt og smátt, eftir því sem nýju bílarnir soguðu til sín fólks- strauminn. Zófónías hefir lagt mikla stund á að bæta kassabíl- ana og gera þá sem þægilegasta fyrir ferðamenn. Mynd sú er hér fylgir sýnir síðustu gerðina. Inn í vagninum geta auðveldlega setið 15 menn, en eru oft fleiri. Aftan Yfirbygður bíll Z. B. á Lækjartorgi í Reykjavík. Eigandinn stendur við bílinn. við húsið" er pallur fyrir flutning farþega, og er þar venjulega hlaðið 3400 kg. Nú í sumar lætur Zófónías tvo bíla af þessari gerð ganga áætlunarferðir austur í sveitir, 4 ferðir á viku, að Garðsauka, en 3 að Sandlæk á Skeiðum. Hvern sunnu- dag sendir hann bíla sína til pingvalla og koma þeir aft- ur sama dag. Auk þess hefir Zófónías þriðja bílinn, er farrými á honum framan til og rúmar 78 menn, en 4