60 SAMVINNAN bak við pallur fyrir flutning og má þar láta 7800 kg. án þess að ofþyngja vagninum. Bændur á Suðurlandi nota nú orðið nær eingöngu yfirbygðu bílana til ferða úr og í kaupstað og með verka- sitt. Ferðirnar eru fljótar og ódýrar. 1 vondum veðrum eru kassabílarnir hlýrri og þægilegri en aðrir bílar. Enginn vafi er á því að áður en langt um líður ætti að hefja reglubundnar ferðir með yfirbygða bíla um hin helstu undirlendi landsins, jafnvel þó að akfæru vegirn- ir séu þar ekki jafnlangir og á Suðurlandi. Frá Borgar- nesi gætu slíkir bílar gengið í tvær áttir, bæði vestur í Hnappadalssýslu og upp með Hvítá að norðan og líklega fólk sitt. Ferðirnar eru fljótar og ódýrar. t vondum veðrum upp í Reykholtsdal. Frá Blöndósi eru all-langir akvegir bæði fram Langadal og fram að Vatnsdal. Um alt undir- lendi Skagafjarðar og Eyjafjarðar er nú að verða fært bifreiðum. Frá Húsavík gengur góður vegur fram til dala í þingeyjarsýslu, og áður en langt um líður verður ak- fært milli Húsavíkur og Akureyrar. Frá Reyðarfirði yfir Fagradal og að nokkru um Héraðið liggja góðir akvegir. Á öllum þessum stöðum ætti að geta komið til mála, á næstu árum, að starfrækja yfirbygða bíla og sumstaðar a. m. k. myndu kaupfélögin í þessum héruðum, er að of- an eru nefnd, verða að beitast fyrir framkvæmdunum.