SAMVINNAN 53 um og nærsveitunura, þeir scra selt gátu mjólk í bæ- inn. Tilgangur félagsins var að koma skipulagi á mark- aðinn og bæta vöruna. Eyjólfur var nokkra mánuði að- stoðarmaður Jóns Kristjánssonar við félagið. En haustið 1918 andaðist Jón í influeneunni miklu. Eyjólfur tók þá við forstjórastöðu í félaginu og hefir gegnt henni síðan. 1920 byrjaði félagið að gerilsneiða mjólkina. Var það hið mesta nauðsynja fyrirtæki, en átti erfitt uppdráttar í fyrstu, því að bæjarbúar vildu síðuv mjólkina hreinsaða ogbænd- um varð hreinsunin dýr. Smátt og smátt breyttist þetta, og er gerilsneiðingin nú vinsæl orðin. Pélagið verslar nú með tilbúinn áburð og kraftfóður. Það er í miklum upp- gangi. 4. Stefán Diðriksson. Stefán er fæddur 15. des. 1892 að Vatnsholti í Árnes- sýslu, Bonur Diðriks bónda Stefánssonar og Olafar Eyj- ólfsdóttur í Vatnsholti. Stefán gekk í Flensborgarskóla 1913 og lauk þar fullnaðar-prófi Hann var harðgerður iþrótta- maður og synti í sjónum skamt frá skólanum flesta daga að vetrinum. Síðan stundaði Stef- án b#rnakenslu í átthögum sínum nokkur ár. I febrúar 1919 var stofnað kaupfélag fyrir Biskupstungur, Laugardal og Grímsnes með sölustað á Minniborg. Stefán var einn af hvatamönnum félags- stofnunar og var þegar í stað valinn frarakvæmdarstjóri og heflr verið það síðan. Félagið átti erfitt fyrstu kreppu- árin, en nú er það í mikilli framför. Það flytur austur að Minniborg mestalla aðflutta vöru handa félagsmönn- um, og suður aftur mestalla landvöru bænda. í þessu skyni hefir félagið jafnan tvær bifreiðar í förum milli