54 SAMVINNAN Minniborgar og Reykjavíkur alt sumarið. Gera þeir hér- aðinu stórmikið gagn m. a. annast nálega alla fólksflutn- inga milli þeirra héraða og Reykjavíkur. 5. Gruðbrandur Magnússon. Guðbrandur er fæddur að Hömrum í Hornafirði 15. febr. 1887, sonur Magnúsar Sig- urðssonar bónda á Possi í Seyðisfirði og Hallfríðar Brandsdóttur, prests Tómas- sonar. Foreldrar hans fluttu til Seyðisfjarðar meðan hann var í bernsku, og þar ólst Guðbrandur upp. Haun lærði ungur prentiðn og stundaði hana nokkur ár í Reykjavík. Þegar hann fluttist til bæjar- ins var ungmennafélagshreyf- ingin að byrja. Guðbrandur varð einn af brautryðjendum hennar og um nokkur ár sambandsstjóri. Þegar Tíminn var stofnaður 1917 var Guðbrandur ritstjóri hans fyrsta árið. Þegar Kaupfélag Hallgeirseyjar var stofnað 1920 varð Guðbrandur fram- kvæmdarstjóri þess og hefir verið það síðan. Pélagið hefir átt við geysimikla örðugleika að stríða sökum hafnleysis- ins. En þó hefir tekist að yfirstíga þær torfærur, eftir því sem náttúruskilyrðin leyfa. Pélagið hefir gert stórgagn nálega hálfri Rangárvallasýslu, með því að flytja þunga- vöru bænda upp á sandinn á þrem stöðum, undir Eyja- fjöllum, í Landeyjutn og Þykkvabæ.