Kaupfólögin. rv. Skipulag samvinnufélaganna er reist á Réttindi og lýðræðis- og réttlætisgrundvelli. Dyr fé- skyldur laganna standa ætíð opnar nýjum félög- félagsmanna, um. J>eir njóta sömu réttinda og stofn- endur eða eldri félagsmenn. Tillög í stofn- sjóð eru jafnhá fyrir alla. Réttindi og skyldur félags- manna eru hinar sömu hvort sem þeir eru betur eða ver efnum búnir. Öllum sem vilja á einhvern hátt styðja að vexti og viðgangi samvinnunnar, gefst kostur á að verða þeirra hlunninda aðnjótandi, er kaupfélögin hafa að bjóða. í hlutafélögum komast ekki fleiri að en hlutabréfin leyfa. Tala þeirra er því takmörkuð. Atkvæðamagn bvers hlut- hafa fer eftir hlutafjáreign hans og gróðinn deilist í hlut- falli við hana. Stærstu hluthafarnir ráða hverir skuli fá sæti í stjórninni, og venjulegast eru stjórnendur valdir úr þeirra hóp. J>að er því tíðast undir atvikum komið, hvort það eru hinir færustu menn, er hafa stjórn hlutafélaganna á hendi. í samvinnufélögunum fer hver félagsmaður með eitt atkvæði. í>eir geta allir haft hin sömu áhrif á stjórn og starfsemi félaganna. Allir hafa hinna sömu hagsmuna að gæta. Reiptog um völdin í eiginhagsmunaskyni á sér því eigi stað. Jafnréttið innan félaganna gefur mönnum kost á að beita áhuga sínum og dugnaði í þágu samvinn- unnar. Valið í trúnaðarstöður félaganna fer eftir verð- leikum félagsmanna. Kaupfélögin leggja engin höft á persónufrelsi félags- manna. Greiður gangur er fyrir alla úr félögunum, er ekki