56 SAMVINNAN rilja starfa lengur að stefnumálum þeirra, og hagsbótum sínum á samvinnugrundvelli eða annara orsaka vegna, segja sig úr þeim. Breyttar ytri kringumstæður, svo sem burtflutningur af félagssvæðinu o. fl., hefir eðlilega oft í för með sér að félagsmaður verður að segja sig úr félagi sínu. þegar slíkt er eigi fyrir hendi,veldur úrsögnum venju- legast ekki, að félagsmaður sjái sér réttilega haga í því að skilja við félagið. Úrsagnir stafa einatt af áhrifum frá andstæðingunum, er með rógburði hafa gert það tortryggi- legt og auðtrúa félagsmenn fráhverfa því, eða jafnvel neytt þá til að ganga úr félaginu. Kaupfélögin eiga það sífelt á hættu, að andstæðingunum takist að tæla skilnings- iitla og áhugalitla félagsmenn úr þeim, þótt þeir bíði beint og óbeint tjón við að skilja við þau. Slíkir menn þurfa sjálfs síns vegna dálítið aðhald og félögin verða að vera við slíku búin. Eðlileg sjálfsvörn félaganna væri sú, að þau áskildu sér rétt til að borga mönnum ekki út inneign þeirra fyr en eftir ákveðinn tíma frá því er þeir segðu sig úr félögunum. það leiðir einnig af anda samvinnunnar, að félagsmenn geta ekki afsalað öðrum réttindum sín- um í félaginu án samþykkis félagsstjómar. Starfsemi kaup- félaganna hvílir fyrst og fremst á samúð og samvinnu mannlegra vera, en ekki á f jármagni og gróða. þau verða því í slíkum tilfellum, fyrst og fremst að taka tillit til skilnings og áhuga nýrra félagsmanna fyrir hlutverki sam- vinnunnar. Félagsmenn geta tekið út tekjuafgang og sparifé í sjóði er þeir vilja, með stuttum fyrirvara, og innstæðufé í stofnsjóði fá- þeir greitt er þeir ganga úr félögunum. I fljótu bragði virðist, að það sé að tefla á tvær hætt- ur með framtíð félaganna, að borga mönnum út inneignir sínar um leið og þeir ganga úr þeim. Hvorki hlutafélög né venjulegar lánsstofnanir hafa þorað að bera jafn mik- ið traust til innstæðueigenda eða hluthafa eins og kaup- félögin sýna félagsmönnum sínum. í hiutafélögum verða hluthafar að selja hlutabréf sín, ef að þeir vilja losna við félagið og ná fé sínu aftur, er þeir hafa lagt í fyrirtækið.