SAMVINNAN 59 Samvinnufélögin setja vinnuna í hásætið Hvernig á að en gera fjármagnið að þjóni hennar. pau verja sjóðum eru eftir eðh sínu andvíg ofbeldi auð- kaupfélaganna. valdsins, gróðafýsn og valdasýki, sem oftast eru þess fylgifiskar. 1 mörgum löndum er ákveðið í sarnþyktum kaupfélaganna, að hver félagsmaður megi ekki eiga nema vissa upphæð í stofn- sjóði. Er það gert til þess að siglt verði hjá því skeri, að einstakir efnamenn geti náð yfirtökum í félögunum, og haft ráð þeirra í höndum sér, þrátt fyrir hinn jafna atkvæðis- rétt allra félagsmanna, t. d. með því að taka út alla inn- eign sína í einu, og lamað félagið á þann hátt. pessi skoð- unarháttur, að fjármagn til muna í höndum félaganna geti orðið hugsjón samvinnunnar til hnekkis, er að nokkru leyti arfur frá eldri tímum, þegar verksvið félaganna var þrengra en það nú er. J>egar aðalverkefni þeirra var að selja mönnum nauðsynjar með sannvirði. Reynsla ófriðar- áranna sýndi, að kaupfélögin verða að reka alhliða fram- leiðslu, og hafa um leið sem víðtækust áhrif á verðlag hrávörunnar, svo að neytendurnir geti notið sannvirðis- ins frá fyrsta stigi framleiðslu nauðsynjanna. Tak- mark kaupfélaganna verður að vera það að reka margs- konar framleiðslu til að geta fullnægt hinum daglegu þörf- um manna. En til þess þurfa þau að hafa meira fé til um^ ráða en viðskiftavelta þeirra krefst. I sumum löndum, t. d. á Englandi, eru sjóðseignir kaupfélaganna svo miklar, að þau þurfa ekki nema helming þeirra til viðskiftavelt- unnar. Miklu af eftirstöðvunum er varið til framleiðslu. Á Englandi og víðar hefir því verið hreyft, að fella í burtu takmarkanir fyrir inneignum félagsmanna. J»ví er haldið fram, að fjármagn í félögunum geti ekki orðið hugsjón samvinnunnar hættuleg. J)að geti hvorki tekið. völdin né gróðann, þareð allir hafi jafnan atkvæðisrétt og tekjuafgangi sé skift í hlutfalli við viðskifti félagsmanna, en ekki inneignir í sjóði. Ennfremur megi setja strangari reglur fyrir útborgunum sjóðeigna, er menn fara úr félög- unum. Kaupfélagsmenn um öll lönd eru orðnir þeirrar