60 SAMVINNAN skoðunar, að félögin eigi að færa út verksvið sitt jafn- hliða því að sjóðseignir þeirra vaxa. Kaupfélögin nafa nóg verkefni fyrir sjóðseignir sínar. Fjöldi viðfangsefna bíður úrlausnar. þau eiga að stefna að því, að vinna bug á sam- kepnisfyrirkomulaginu í framleiðslu og verslun. Taka framleiðslu og verslun smámsaman í sínar hendur, reka iðnað, landbúnað, byggja holl og góð hús fyrir félags- menn o. s. frv. Kaupfélög er eiga stærri sjóðseignir, en verslun þeirra krefst, gætu stungið góðum gróða í vasa sinn, að auðmanna sið, ef að þau keyptu verðbréf eða hlutabréf í arðvænlegum fyrirtækjum. En það væri að fá andstæðingunum vopn í hendur. það væri gagnstætt anda samvinnunnar, ef að félögin legðu fé sitt í gróða- brall einstakra manna eða hlutafélaga. það eðlilegasta er,, að félögin noti sjóðseignir sínar eingöngu í þágu sam- vinnunnar, og til að færa sig lengra fram á framsóknar- brautinni. þær stéttir þjóðfélagsins er hafa skipað sér undir merki samvinnunnar eiga að njóta uppskerunnar. Sjóðeignir samvinnufélaganna er lyftistöng hinna fátæku í lífsbaráttunni og styrkur þeirra í baráttunni, fyrir Lættu þjóðskipulagi.