68 SAMVINNAN menn geta alls ekki útvegað kjósendum sínum fé til neinna fyrirtækja hjá þinginu. Bitlingar til kjördæm- anna geta ekki átt sér stað einsog síðar verður sýnt, og öll hreppapólitík er útilokuð. þetta er ákaflega mikilvægt fyrir stjórnmálalíf þjóðarinnar, en fáar aðrar þjóðir hafa borið gæfu til þess, að fara að dæmi Englendinga í þess- um efnum. Parlamentið er helgidómur þjóðarinnar, og hún kost- ar kapps um að sýna því virðingu. Umtal enskra blaða um starfsemi þingsins er harðla ólíkt því, sem algengt er meðal annara þjóða um þing sín. Hinum nýkjörnu þingmönnum er tekið með mikilli viðhöfn er þeir taka sæti sitt, og þegar þingið er sett, ér sú athöfn afareinkennileg og hátíðleg, en því nær óskilj- anleg fyrir þá, sem ekki eru vel kunnugir sögu Englands. Allir hinir margvíslegu fornu siðir standa í nánu sam- bandi við sögu þingsins á liðnum öldum, og baráttu þess við konungsvaldið, kirkju og aðal. Allir þessir fornu siðir flytja þingmönnum sömu kenninguna um tign og alveldi þingsins. Konungar koma og hverfa, skift er um kirkju og siði, en Parlamentið eitt er varanlegt. Hvar sem menn líta í kringum sig í hinum háreistu þingsölum, þá andar á móti þeim, frá málverkum á veggj- um og líkneskjum á gólfi og í veggskotum, sömu setn- ingunni: Enginn hefir svo reynt að brjóta vald Parlamentsins, að það hafi ekki molað hann". Eins og nærri má geta hafa Englendingar valið þing- inu vegleg húsakynni. J>inghúsið er bygt í seingotneskum stíl. Gotneski stíllinn er hinn þjóðlegi byggingarstíll Eng- lands og þinghúsið er hin stórfeldasta veraldleg bygging í þeim stíl. pingið er venjulega sett í febrúar, og situr fram í júlí eða ágúst. Svo eru oft stuttir þingfundir snemma á vetrum. (okt.nóv.). f ingfundir . eru haldnir, alla virka daga, nema laugardaga. Hver fundur byrjar með guðs- hjónustu. . . . ,. :;.