72 SAMVINNAN Private Bills*). Með hinum fyrri er átt við þau frumvörp er snerta almenningsheill, ríkisheildina eða nýlendurnar. Private Bills" eru aftur á móti frumvörp,sem snerta hags- muni einstaklinga eða einstakra sveita og bæjarfélaga. J)au eru ekki flokksmál. Annars er oft erfitt að draga skýra línu milli þessara tveggja tegunda af frumvörpum. J>að er stjórnarinnar verk og hefir mikla þýðingu, því meðferð þeirra á þinginu er gagnólík. þegar merkileg almenn frumvörp (Public Bills) eru lögð fyrir þingið, þá eru þau fyrst rædd tvívegis á líkan hátt og á Alþingi. Atkvæðagreiðsla fer ætíð fram við aðra umræðu, og ef málið er kappsmál þá einnig við þriðju um- ræðu, annars ekki. En eftir aðra umræðu breytir þingið sér í nefnd" sem svo er kallað. þessi breyting er fólgin í því, að öllum hinum gömlu og margbrotnu þingsköpum er slept. Forsetinn (Speaker) víkur úr sæti og í stað hans kemur formaður nefndarinnar, sem líka er fastur embætt- ismaður þingsins. Á þennan hátt er hægt að ræða mál- in miklu ítarlegar en á vanalegum þingfundum. En í raun- inni er þetta engin nefnd, því allir þingmenn eiga sæti í henni**). Nefndir í sama skilningi og á Alþingi tíðkast ekki í Parlamentinu. Aftur á móti hafa menn á síðasta manns- aldri tekið upp á því, að skipa fjórar fastar nefndir Standing Committées" fyrir alt þingið. Ein af þessum nefndum tekur til meðferðar öll þau mál er snerta Skot- land og allir hinir skosku þingmenn eiga sæti í henni. I hinum nefndunum sitja 6080 kjörnir þingmenn. þessar nefndir eru einskonar þing út af fyrir sig. Fundir eru haldnir fyrir opnum dyrum og þeir ráðherrar er málin *) Má ekki blanda saman við Private Members Bills", þ. e. frumvörp frá einstökum þingmönnum, sem eru því nr horf- in úr sögunni, eins og sagt verður síðar frá. **) Á nefndafundum eru engar ákvarðanir teknar. Málin eru aðeins rdd. Atkvæðagreiðsla fer fram á virkilegum þing- fundum.