SAMVINNAN 73 heyra undir taka þátt í umræðum. Auk þess eru stundum skipaðar 4 manna nefndir til þess að rannsaka lítilvægi- leg mál. Meðferðin á Private Bills" en alt öðru vísi. Um það hafa verið settar miklar og margbrotnar reglur, sem hér er ekki rúm til að lýsa, að eins skal hér sagt, að í þess- um málum gætir nefndarstarfanna miklu meira, og þau eru sjaldan eða aldrei gerð að flokksmálum. Minni hlut- mn ræður hér oft eins miklu eins og stjórnarflokkurinn. J»areð mörg atvinnumál heyra undir Private Bills" er auðskilið að þetta hefir afskaplega þýðingu fyrir þing- stjórnarfyrirkomulagið. Flest þessi frumvörp þurfa form- legan undirbúning, sem kosta of fjár. Er þetta gert til til þess að hindra spekulation", einstakra manna og fé- laga í atvinnumálum, sem mikið var farið að bera á. Til dæmis með einkaleyfi, sérréttindi eða fjástyrk til einhvers atvinnureksturs. Ef einhver sveit, borg eða félag vill fá einhver hlunnindi frá ríkinu, þá verður það fyrst að út- vega sér allskonar skýrslur frá ýmsum embættismönnum bæja- og sveitafélaga og atvinnurekendum, til þess að sýna og sanna nytsemi málsins. því næst verður að fá stjórn- ina til þess að leggja málið fyrir þingið. En áður en hún gerir það, skipar hún vanalega nefnd óvilhallra, sérfróðra manna til þess að rannsaka málið. þessar nefndir eru vanar að drepa mestan hluta af beiðnum þeim, er fram koma. Allan kostnað er af þessu Ieiðir verða umsækjend- ur sjálfir að borga. J)essi gangur málanna er seinn og þunglamalegur, en á þennan hátt hefir Englendingum tekist að miklu leyti, ,,að losa sig við þá spillingu, sem er orðin svo rótgróin hjá flestum öðrum þjóðum, að einstök gróðabrallsfélög reyni að nota fjárveitingavald þinganna í eiginhagsmunaskyni. J>á komum vér að því, sem er eitt hið merkilegasta atriðið í löggjafarstarfsemi breska þingsins, því atriði, sem er ólíkast því er tíðkast á öðrum þingum, og það er frumkvæði mála. Á næstum því öllum löggjafarþingum í öðrum ríkjum