SAMVINNAN 83 stjórnin falli. Andstæðingamir eiga jafnan á að skipa fjölda af vel mentuðum, sjálfstæðum og stjórnhæfum rnönnum til þess að taka við völdunum. pess má einnig geta, að Englendingar krefjast þess fastlega af stjórnmálaleiðtogum sínum, að þeir séu efna- lega sjálfstæðir. Ráðuneytið ber sameiginlega ábyrgð á gerðum ein- stakra ráðherra, og svo auðvitað hver þeirra útaf fyrir sig á sínum gerðum. En eftir enskum skilningi verða ráð- herrar ekki dæmdir fyrir embættisafglöp, nema þeir hafi unnið eitthvert verk, sem kemur í bága við grundvallarat- riði þingstjórnarinnai. Fyrir föðurlandssvik má auðvitað kæra ráðherra. Annars líta Englendingar svo á, að hinn siðferðislegi dómur almenningsálitsins, sé nægileg refs- ing. Landsdómur er enginn til á Englandi, en neðri deild þingsins getur kært ráðherra fyrir efri deild þingsins, sem svo kveður upp dóminn. Lávarðarnir geta ekki kært ráðherra. Neðri deild ein hefir rétt til þess. Stjórnin getur með samþykki konungs rofið þing er henni sýnist og efnt til nýrra kosninga. þetta er mjög títt á Englandi. þing situr sjaldan alt kjörtímabilið. í>ing- rof er hin öflugasta vörn stjórnarinnar gegn yfirgangi þingmanna. ^ pingið er einnig æðsti dómstóll Englands í fjölda- mörgum málum. Bretar eiga engan eiginlegan hæstarétt. þeir hafa fjölda af hliðstæðum dómstólum með einkenni- legu sniði, sem allir eiga rót sína að rekja til hinnar sögu- legu þróunar á löngu liðnum tímum. Allur málarekstur er þunglamalegur og afardýrt að ná rétti sínum. Úrskurðum flestra dómstóla má skjóta til þingsins og er dómur þess endanlegur. Gömul ensk setning segir: pað er hvorki leyfilegt né sæmandi, að efast um, eða gagnrýna dóma þingsins". pingið er í rauninni hafið yfir alla dómstóla. Hin stolta setning Pitts eldra: Fátækling- urinn í hreysi sínu getur boðið öliu veldi krúnunnar byrg- inn. þó kofinn sé kominn að hruni, rigni í gegnum þakið 6*