SAMVINNAN 85 allar hinar helstu nýlendur Breta út um heim. Hvað sem úr þessu kann að verða, þá er það víst, að einhver breyt- ing verður gerð á lávarðadeildinni áður en á löngu líður. pá hafa einnig komið fram tillögur um að breyta hinu breska ríki í ríkjasamband (Confederation). J>ar sem Eng- land yrði ekki hið drotnandi móðurland, heldur að eins íjölmennasta og auðugasta landið. I þessu sambandsríki ættu að vera auk Englands, Skotlands og ULsters, allar breskar nýlendur, sem sjálfstjórn hafa (Dominions). Parlamentið ætti þá að vera alríkisþing með fulltrúum frá öllum löndum í sambandinu, en England aftur að fá nýtt þing fyrir sérmál sín. J>essi tillaga á þó sjálfsagt langt í land. Englendingum þykir of vænt um sitt fornhelga þing, til þess að þeir vilji offra því fyrir alríkið. Samt er ýmislegt, sem bendir á að hugmyndir um sambandsríkið sé hugmynd framtíðar- innar. J>að sé hinn eini möguleiki til þess að hægt sé að vernda hið breska heimsveldi og halda því saman óskiftu um ókomnar aldir.